Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. september 2025

Verðbreytingar og voropnun orlofshúsa

Frá og með áramótum mun gistigjald í orlofshúsum Sameykis breytast. Stærstu húsin færast í annan verðflokk og gistigjald annara húsa breytist. Verðbreytingarnar eiga aðeins við um bókanir í húsum innanlands utan úthlutunartímabila.

Núverandi verð:
Fyrsta nótt kr. 9.550, önnur nótt kr. 9.550, aukanætur kr. 2.650.

Verð eftir áramót:
Fyrsta nótt kr. 10.000, önnur nótt kr. 10.000, aukanætur kr. 2.500.

Verð á húsum í öðrum verðflokki eftir áramót. Fyrsta nótt kr. 14.000, önnur nótt kr. 14.000, aukanætur kr. 2.500.

Hús sem færast í annan verðflokk eru:
Norðurás 1 í Svínadal
Hólasetur í Biskupstungum
Úthlíð, Skútabraut 1
Selásar 20 Borgarbyggð
Húsafell Hraunbrekkur 4
Húsafell Hraunbrekkur 6
Akureyri – Hamratún 26
Akureyri –  Holtaland 1
Akureyri –  Holtaland 3
Reykjavík Grandavegur 42G –  Íbúð 301
Reykjavík Grandavegur 42D –  Íbúð 303

Voropnun
Við minnum á að voropnun orlofshúsa er 4. september kl. 12:00. 1. til 8. september er opið fyrir umsóknir um úthlutun á Tenerife á vortímabili.

Lokað vegna viðhalds
Frá 8. til 22. janúar verður húsið á Tenerife lokað vegna viðhalds.
Frá 9. til 30. apríl verður lokað í Vaðnesi vegna viðhalds.