3. september 2025
Þjóð gegn þjóðarmorði

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu styður ásamt BSRB samstöðuna með Palestínu. Um er að ræða breiðfylkingu félaga, hópa, samtaka og stofnana sem efna til fjöldafundar þann 6. september kl. 14:00 víðs vegar um landið.
Í nær tvö ár hefur heimsbyggðin fylgst með sífellt versnandi og óbærilegum þjáningum almennra borgara í Palestínu með hryllingi. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir fimmta og þar með efsta stigi hungursneyðar. Hún er alfarið manngerð af völdum Ísrael sem hefur lagt ræktanlegt landsvæði í rúst á Gaza og lokað fyrir að matvæli berist til íbúa.
Samkvæmt gögnum ísraelska hersins eru 83 prósent þeirra sem Ísrael hefur myrt almennir borgarar. Þar af eru a.m.k. 18.500 börn eða um 28 börn á hverjum einasta degi, álíka mörg og heill bekkur í grunnskóla á hverjum degi.
Þjóðarmorð stendur yfir af hálfu Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni. Stríðsglæpi Ísraels verður að stöðva.
Ríkisstjórn Íslands hefur líkt og aðrar ríkisstjórnir vestrænna ríkja ekki brugðist við glæpum Ísraels í samræmi við alvarleika þeirra. Nú hafa heildarsamtök launafólks, verkalýðsfélög, mannúðarsamtök, fagfélög og önnur samtök tekið saman höndum til að halda mótmælafundi um land allt þar sem almenningur kemur saman til að sýna samstöðu sína með Palestínsku þjóðinni og krefjast þess að íslensk ríkisstjórn grípi til alvöru aðgerða til að sýna afstöðu sína gegn þjóðarmorðinu!
Við höfnum þjóðarmorði og brotum Ísraels á alþjóðalögum. Tími yfirlýsinga og undanbragða er liðinn, tími aðgerða er runninn upp!
Fjölmennum og krefjumst tafarlausra og markvissra aðgerða íslenskra stjórnvalda gegn þjóðarmorðinu!
Sjá frétt hér á vef BSRB um hvar mótmælin fara fram víðs vegar um landið.
.jpg)
Mótmæli af sama toga fóru fram í miðborg Kaupmannahafnar 24. ágúst sl. Yfirskrift þeirra var „Mótmælum úti á strætunum fyrir frjálsri Palestínu!“ Ljósmynd/Axel Jón