12. september 2025
Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar gagnrýna ríkisstjórnina harðlega

Finnbjörn A Hermannsson, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Magnús Þór Jónsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Helga Rósa Másdóttir. Samsett mynd/Axel Jón
„Fordæmalaust er að stjórnvöld taki einhliða ákvörðun um breytingar á grundvallarréttindum vinnandi fólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna.“
BSRB, BHM, ASÍ, KÍ og Fíh sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau gagnrýna áform ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að breyta lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar segja m.a. í yfirlýsingunni fordæmalaust að ríkisstjórnin taki einhliða ákvörðun um breytingar á grundvallarréttindum vinnandi fólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Þá gagnrýna þau ríkisstjórnina harðlega og segja hana afhjúpa þekkingar- og skeytingarleysi á mikilvægi samstarfs við aðila vinnumarkaðarins.
Yfirlýsingin í heild sinni:
Ríkisstjórnin þverbrýtur leikreglur vinnumarkaðarins
Í dag birtust í samráðsgátt stjórnvalda áform ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Meðal breytinganna er ákvæði sem ætlað er að auðvelda stjórnendum að reka starfsfólk ríkisins.
Með þessu áformar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að skerða einhliða réttindi launafólks. Fordæmalaust er að stjórnvöld taki einhliða ákvörðun um breytingar á grundvallarréttindum vinnandi fólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Nú bætist þetta við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar af sama toga um skerðingu atvinnuleysistrygginga sem og skerðingu réttinda örorku- og ellilífeyrisþega í lífeyrissjóðum.
Grunnstoð íslenska vinnumarkaðsmódelsins er náið samráð og samskipti aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um öll þau mál er snúa að kjörum launafólks. Þetta módel er undirstaða sterks vinnumarkaðar á Íslandi og velferðarsamfélagsins og er lykilatriði að farsæld þeirra verkefna sem unnin eru á vettvangi ríkisins.
Með þessum áformum afhjúpar ríkisstjórnin þekkingar- og skeytingarleysi sitt á mikilvægi samstarfs við aðila vinnumarkaðarins.
Íslensk verkalýðshreyfing hafnar þessum vinnubrögðum og áformum og mun verjast skerðingum á réttindum launafólks af hörku.
Finnbjörn A Hermannsson forseti ASÍ
Helga Rósa Másdóttir formaður Fíh
Magnús Þór Jónsson formaður KÍ
Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB