18. september 2025
Gönguhópur lífeyrisdeildar tekur til starfa á ný

Pétur Ásbjörnsson hefur tekið að sér að vera göngustjóri lífeyrisdeildar Sameykis.
Pétur Ásbjörnsson hefur tekið að sér að vera göngustjóri lífeyrisdeildar Sameykis og ætlar að byrja með göngur um garða Reykjavíkur. Fyrsta gangan verður í Fossvogskirkjugarði 25. september klukkan 10:00. Hefst gangan fyrir utan kirkjuna. Hugmyndin er að vera með göngu síðasta fimmtudag í hverjum mánuði.