28. október 2025
Haustfagnaður lífeyrisdeildar frestað til 30. október

Vegna óvissu með færð á vegum í höfuðborginni á morgun, miðvikudag 29. október, hefur verið ákveðið að fresta haustfagnaði lífeyrisdeildar Sameykis um einn dag, til fimmtudagsins næstkomandi 30. október.
Eins og áður var auglýst er haustfagnaðurinn haldinn í Gullhömrum í Grafarholti frá kl. 12.00 til 15.00.
Hlökkum til að sjá ykkur á haustfagnaði lífeyrisdeildar.