30. október 2025
Mannauðs- og starfsumhverfiskönnunin Stofnun ársins 2025 hafin

Mannauðs- og starfsumhverfiskönnunin Stofnun ársins 2025 hafin
Nú er Sameyki að fara af stað með mannauðs- og starfsumhverfiskönnunina Stofnun ársins 2025 sem framkvæmd er af Gallup. Tilgangur könnunarinnar er að styrkja starfsumhverfi starfsfólks í almannaþjónustu. Hún veitir ítarlegar upplýsingar um stöðu mála, þ.e. styrkleika og áskoranir í starfsumhverfinu sem nýta má til umbótastarfs á vinnustaðnum.
Þátttakendur eru spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar eða starfsstaðar, ánægju og stolt og jafnrétti.
Til þess að stofnanir og vinnustaðir mælist inn í könnuninni þarf að nást ákveðið svarhlutfall. Vakin er athygli á því að hægt er að svara könnuninni á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
Nú þegar er Gallup byrjað að senda út könnunina til félagsfólks með tölvupósti.
Hægt er að svara könnuninni inn á Mínum síðum Sameykis.