Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. janúar 2026

Úthlutun íbúða Bjargs íbúðafélags í Reykjanesbæ

Sameyki vill vekja athygli félagsfólks á að nú styttist í úthlutun nr. 2 á íbúðum sem nú eru í byggingu á vegum Bjargs íbúðafélags í Trölladal í Reykjanesbæ.

Sameyki vill vekja athygli félagsfólks á að nú styttist í úthlutun nr. 2 á íbúðum sem nú eru í byggingu á vegum Bjargs íbúðafélags í Trölladal í Reykjanesbæ. Mikilvægt að félagsfólks sem þarna eiga rétt á úthlutun sé örugglega vel upplýst. Hægt er að kynna sér íbúðirnar hér.

Áætlað er að fyrstu íbúðir verði tilbúnar í júlí 2026 og svo næst í október 2026. Hægt er að kynna sér frekari upplýsingar um úthlutun og upphaf leigu á vef Bjargs hér.

Íbúðirnar eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja. Gæludýrahald er heimilt í íbúðum á jarhæðum, sjá nánar reglur Bjargs um gæludýrahald hér.