Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

29. janúar 2026

Ársverðbólgan talsvert yfir forsendum sem liggja að baki kjarasamningum

Verðbólga mælist nú 5,2 prósent á ársgrundvelli samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands. Samsett mynd/Sameyki

Verðbólga mælist nú 5,2 prósent á ársgrundvelli samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands, sem birtar voru í morgun. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,38 prósent milli mánaða í janúar 2026 og er hækkunin að stórum hluta rakin til breytinga á gjöldum tengdum samgöngum og ökutækjum um áramótin.

Hagstofan bendir á að ýmsar gjaldskrárbreytingar hafi haft áhrif til hækkunar á vísitölunni, þar á meðal breytingar á vörugjöldum bifreiða og innleiðing veggjalda, sem vega þungt í hækkun á undirliðnum flutningar. Á sama tíma lækkaði verð á bensíni og dísilolíu, en kolefnisgjöld hækkuðu og drógu þannig úr þeim lækkunaráhrifum. Flugfargjöld lækkuðu í janúar og höfðu áhrif til lækkunar á vísitölunni.

Útsölur í janúar höfðu sömuleiðis áhrif til lækkunar á verði á fatnaði og skóm, húsbúnaði og heimilistækjum. Þrátt fyrir það reyndist heildaráhrif útsala ekki nægjanleg til að vega upp á móti hækkunum sem komu fram í öðrum undirliðum vísitölunnar.

Ársverðbólgan er því talsvert yfir þeim forsendum sem liggja að baki kjarasamningum ársins 2026 að sögn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, hagfræðingi hjá BSRB.


Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá BSRB.

„Samkvæmt forsenduákvæði samninganna er gert ráð fyrir að 12 mánaða verðbólga verði undir 4,7 prósent í ágúst 2026 eða að meðal ársverðbólga á tímabilinu mars til ágúst 2026 verði 4,4 prósent eða lægri. Nýjustu tölur benda því til þess að verðbólguþróunin sé þegar farin að fjarlægjast þær forsendur sem samið var út frá.“

Þróunin skiptir miklu máli fyrir kaupmátt launa og stöðu launafólks, þar sem viðvarandi verðbólga dregur úr raunvirði launahækkana. Tölur Hagstofunnar í morgun undirstrika því mikilvægi þess að fylgjast náið með verðbólguþróun á næstu mánuðum, ekki síst í ljósi forsenduákvæða kjarasamninga og umræðu um fjárhagsstöðu heimilanna.