Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. febrúar 2026

Gagnrýnir harðlega mannauðsstefnu ríkisstjórnarinnar

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, gagnrýnir mannauðsstefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur undir forystu Daða Más Kristóferssonar.

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, gagnrýnir harðlega áform ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur undir forystu Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra, um breytingar á mannauðsmálum í ríkisrekstri í nýjum pistli á Vísi. Í pistlinum fjallar Kári meðal annars um hugmyndir um að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna og varar við því að rýra réttindi launafólks í nafni skilvirkni. Hann segir að slíkar aðgerðir missi marks við raunverulegan vanda stjórnsýslunnar.

„Lausnin felst ekki í því að veikja réttindi starfsfólks, heldur í faglegri stjórnun, skýrum ferlum og raunverulegu samráði á vinnustöðum hins opinbera,“ segir Kári í pistlinum.

Hann bendir jafnframt á að óstöðugleiki, tíðar skipulagsbreytingar og skortur á mannlegum vinnubrögðum hafi neikvæð áhrif á starfsanda og gæði opinberrar þjónustu. Að mati Kára þurfi umbætur í mannauðsmálum að byggja á trausti, ábyrgð og fagmennsku, en ekki á einföldum lagabreytingum sem veikja stöðu starfsfólks með afregluvæðingu vinnumarkaðarins.

Pistillinn er innlegg í áframhaldandi umræðu um stefnu ríkisstjórnarinnar í mannauðsmálum og framtíð opinberrar stjórnsýslu.