6. febrúar 2026
Heildarkjarasamningur SFV og Sameykis gefinn út

Starfsfólk í velferðarþjónustu við störf. Ljósmyndir/Sigurður Ó. Sigurðsson
Sameyki og Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa gefið út heildarkjarasamning sem byggir á þeim kjarasamningum sem hafa verið undirritaðir af samningsaðilum.
Í kjarasamningi samningsaðila sem undirritaður var 2. júlí 2024 var gerð bókun um útgáfu heildarkjarasamnings. Samningsaðilar komu sér saman um að fella efni nýjasta samningsins inn í heildartexta kjarasamningsins og eftir því sem við átti, fella brott bókanir sem ekki ættu lengur við.
Ákveðið var að miða heildarkjarasamninginn við 1. nóvember 2024, þrátt fyrir að gildistími hans sé frá og með 1. apríl 2024. Ástæða þess er sú að umfangsmiklar breytingar á kjarasamningnum, þar á meðal breytingar sem lúta að fylgiskjölum 1 og 2 um betri vinnutíma, tóku ekki gildi fyrr en 1. nóvember 2024.
Jafnframt er vakin athygli á því að við gerð heildarkjarasamningsins var bókun um önnur laun uppfærð. Hún er nú bókun 6 meðal bókana ársins 2024 (áður bókun 9 frá árinu 2019). Samkvæmt uppfærðri bókun skulu önnur laun samkvæmt grein 1.1.3 hækka á samningstímanum sem hér segir:
• 3,25% hækkun frá 1. apríl 2024
• 3,5% hækkun frá 1. apríl 2025
• 3,5% hækkun frá 1. apríl 2026
• 3,5% hækkun frá 1. apríl 2027
Einnig er vakin athygli á leiðbeiningum stýrihóps um betri vinnutíma sem varða ýmis ákvæði kjarasamningsins. Leiðbeiningunum er ætlað að auka gagnsæi og stuðla að sameiginlegum skilningi aðila á efni og framkvæmd kjarasamningsins. Þær taka meðal annars til ráðninga í tímavinnu, mönnunar á stórhátíðardögum og hléa frá vinnu í ljósi nýs vinnutímafyrirkomulags. Félagsfólk er hvatt til að kynna sér leiðbeiningarnar.
Heildarkjarasamningur, launatöflur og leiðbeiningar eru aðgengilegar á vef Sameykis, sjá hér.
Hægt er að kynna sér hér heildarkjarasamning Sameykis og fjármála- og viðskiptaráðherra f.h. ríkissjóðs og leiðbeiningar stýrihóps um betri vinnutíma hér.