Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

11. febrúar 2026

Heilbrigðisstarfsfólk á bráðamóttökunni búið að fá nóg

Skýr krafa fundarins var að bregðast verði strax við fullkomlega óviðunandi aðstæðum á bráðamóttökunni. Ljósmyndir/Axel Jón

Stéttarfélögin, Sjúkraliðafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu, Efling stéttarfélag og Læknafélag Íslands stóðu fyrir lokuðum fundi með félagsfólki sínu sem starfar á bráðamóttöku Landspítala. Fundurinn var vel sóttur og salurinn troðfullur þar sem hann var haldinn á Grand Hótel. Andrúmsloftið var eiginlega þrungið harmi yfir reynslusögunum sem starfsfólkið sagði frá störfum sínum á bráðamóttökunni og kom mjög skýrt fram í máli þess að starfsfólkið er fyrir „löngu síðan búið að fá nóg“ af úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar. Skýr krafa fundarins var að bregðast verði strax við óviðunandi starfsaðstæðum á bráðamóttökunni.

„Þetta gengur ekki upp í okkar huga, bráðamóttakan er yfirfull af sjúklingum, ég sem heilbrigðisstarfsmaður get ég ekki sinnt sjúklingunum mínum vegna þess aðbúnaðar sem okkur er ætlað að vinna við. Ég kem kvíðin í vinnuna, og ég fer kvíðinn heim. Ég hef stöðugar áhyggjur af því að ríkisstjórnin setur mig í þá stöðu að ég á erfitt með að uppfylla eiðinn sem ég tók þegar ég hóf störf á spítalanum,“ sagði heilbrigðisstarfsmaður á fundinum.

Annar starfsmaður lýsti því að á bráðamóttökunni eru starfræktar tvær legudeildir en á bráðamóttökunni á ekki að reka legudeild.

„Þetta er ekki hægt, við erum á hlaupum alla vaktina og ráðum ekki við þetta álag. Sjúklingar þurfa að liggja á göngunum, stundum dögum saman, og þá er rekin legudeild sem er ekki hlutverk bráðadeildar að gera. Ég skil ekki hvernig í ósköpunum ríkisstjórnin opnar ekki strax sjúkrahótel eins og gert var í kóvid faraldrinum. Þá stóð ekki á ráðamönnum. En núna, í þessu ástandi sem lýsa má sem stríðsástandi, má ekkert gera. Við eigum bara að hlaupa en margt okkar mun ekki þola þetta ástand á bráðamóttökunni mikið lengur þrátt fyrir að vilja ekki starfa við neitt annað. Ríkisstjórnin verður að taka í taumana og gera eitthvað.“

Ástandið á bráðamóttökunni eins og stríðsástand
Atli Dagur Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur, sagði að engar sóttvarnir séu á bráðamóttökunni vegna þess að það sé ekki hægt að koma þeim við því sjúklingar liggja á göngum bráðamóttökunnar.

„Það kom mér ekki á óvart að berklasmit komu upp á spítalanum því sjúklingar liggja á göngunum og við þannig aðstæður er ekki um það að ræða að vera með sóttvarnir. Sjúklingarnir sem þar liggja eru með allskonar sjúkdóma og sýkingar. Auk þess er allt of mikið álag á starfsfólki, fólki sem þykir vænt um sjúklingana sína langar til að hjálpa og njóta þess að starfa við umönnun, en ástandið er ekki fólki bjóðandi, þetta er eins og stríðsástand. Ég myndi ekki vilja vera sjúklingur á mínum vinnustað,“ sagði Atli Dagur á fundinum.

Þá kom fram í máli fundargesta að aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar hafi haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilbrigðiskerfið og starfsfólkið, vandi sem bitnað hefur illa á líðan og þreki heilbrigðisstarfsfólks sem helgað hefur sig að hjúkra fólk og hafa umhyggju fyrir sínum skjólstæðingum. „Ástandið verður bara verra og verra á bráðamóttökunni. Auk þess hefur þessi vandi reynt á sjúklinga með þeim afleiðingum að starfsfólkinu er hótað ofbeldi, það lamið, því er ógnað og margt af þessu ofbeldi gerist á göngum bráðamóttökunnar,“ kom fram á fundinum.

Þessar sögur verða að heyrast, og stjórnvöld verða að bregðast við strax
Formaður Sameykis, Kári Sigurðsson, sagði að hann vissi af vandanum en hann hafi ekki gert sér í hugarlund hve gríðarlega alvarlegt ástandið er. Hann hvatti ríkisstjórnina og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra og Daða Má Kristófersson, fjármálaráðherra að grípa tafarlaust til aðgerða til að leysa vandann á bráðamóttökunni.

„Ég held að fólk átti sig engan vegin á hve óboðlegar aðstæður þið eruð að vinna í. Flestir eru með einhvern lágmarks skilning á því að ástandið er ekki nógu gott en ykkar sögur sem þið hafið verið að segja hér verða að fá að heyrast,“ sagði Kári.

Þá sagði hann að á sama tíma, í þessu ástandi, fer ríkisstjórnin markvisst gegn opinberu starfsfólki.

„Á sama tíma og þið erum í þessum ótrúlegu aðstæðum fer ríkisstjórnin gegn réttindum opinberra starfsmanna, vill grafa undan starfsöryggi ykkar með því að taka af ykkur réttindi eins og áminningarskylduna því ríkisstjórnin vill geta sagt ykkur upp ef svo ber við. Þessi aðför að opinberum starfsmönnum fær að viðgangast. Þið eruð að lýsa því nákvæmlega hvernig starfsfólk sem starfar af mikilli ástríðu verður fyrir kulnun í starfi. Þið eruð svo mörg í þeirri stöðu að ganga á varatankinum af því þið elskið starfið ykkar. Á sama tíma velta stjórnvöld allri ábyrgðinni yfir á ykkur og það er ekki hægt að sætta sig við. Þau sem ábyrgðina bera þurfa að gangast við henni og fara tafarlaust í úrbætur á bráðamóttökunni.

Það er ekki heilbrigt heldur að ríkisstjórnin skuli krefjast þess af ykkur að þið skulið taka á ykkur höggin og um leið ganga stjórnvöld á réttindi ykkar. Það virðist vera forgangsmál hjá þessari ríkisstjórn. Þetta er svívirðileg framkoma og ekki gleyma því að þessi ríkisstjórn hefur skorið niður um milljarða króna í þegar fjársvelt heilbrigðiskerfi sem er ekkert annað en pólitísk ákvörðun,“ sagði Kári.


  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd
  • Fréttamyd