Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. febrúar 2026

Heilbrigðisstarfsfólk á bráðamóttöku krefst tafarlausra aðgerða

Bent er á að bráðamóttakan hafi verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en ár án þess að heilbrigðisyfirvöld né ríkisstjórnin hafi gripið til fullnægjandi úrbóta.

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi samþykkti á fundi sem haldinn var í gær harðorða ályktun þar sem krafist er tafarlausra aðgerða vegna alvarlegs ástands á bráðamóttökunni. Að þeirra mati stefna aðstæður dag hvern öryggi sjúklinga og starfsfólks í bráða og óverjandi hættu.

Í ályktuninni kemur fram að fjöldi sjúklinga sé langt umfram það sem húsnæði leyfir og sem mönnun og öryggiskerfi bráðamóttökunnar ráða við. Yfir 100 sjúklingar séu að jafnaði vistaðir í rými sem hannað er fyrir 36. Afleiðingin sé sú að hvorki sé hægt að tryggja fullnægjandi sýkingavarnir, brunavarnir né persónuvernd.


Heilbrigðisstarfsfólk krefst aðgerða frá ríkisstjórninni.

Bent er á að bráðamóttakan hafi verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en ár án þess að heilbrigðisyfirvöld né ríkisstjórnin hafi gripið til fullnægjandi úrbóta. Þá er vísað til minnisblaðs landlæknis frá 2. júní 2022 þar sem staðfest var að deildin uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda og undirmönnunar. Starfsfólk segir bráðamóttökuna í reynd reka tvöfalda legudeild samhliða bráðaþjónustunni, sem lamar viðbragðsgetu deildarinnar og hindri hana í að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Slíkt ástand sé óverjandi og hafi varanleg og neikvæð áhrif á bæði starfsfólk og gæði þjónustunnar.

Í ályktuninni er einnig bent á að átta starfsmenn hafi greinst með leynda berkla í desember, sem undirstriki afleiðingar þess að sýkingavarnir og aðbúnaður séu ekki í samræmi við lög og reglur. Starfsfólk krefst þess að bráðamóttakan uppfylli lög um hollustuhætti, öryggi og aðbúnað og að tafarlaust verði gripið til aðgerða. Þá er skorað á embætti landlæknis, Vinnueftirlitið, heilbrigðiseftirlit, eldvarnaeftirlit, Persónuvernd og heilbrigðisyfirvöld að fylgja eftir fyrri athugasemdum og úttektum.

„Öryggi sjúklinga og starfsfólks má ekki lengur vera fórnarkostnaður,“ segir í ályktuninni, þar sem krafist er ábyrgðar þeirra sem fara með stjórn og eftirlit í heilbrigðiskerfinu.

Ályktunin hefur verið send viðkomandi eftirlitsaðilum, ráðuneytum og nefndum Alþingis, auk þess sem fjölmiðlum hefur verið tilkynnt um hana.

Sjá ályktunina í heild sinni hér.