12. febrúar 2026
Málþing Sameykis: „Markmiðið er ekki að refsa heldur að bregðast snemma við“

Torfi Már Jónsson, sálfræðingur hjá Muni sálfræðistofu. Ljósmynd/Axel Jón
Torfi Már Jónsson, sálfræðingur hjá Muni sálfræðistofu, fjallaði á Máþingi Sameykis um fjarveru vegna kvíða og mikilvægi þess að greina á milli streitu og klínískra kvíðaeinkenna.
„Streita minnkar oft þegar verkefni klárast. En kvíði getur haldið áfram jafnvel þegar álagið er ekki lengur til staðar,“ sagði Torfi og lagði áherslu á að þessi munur skipti máli þegar meta á fjarvistir frá vinnu og veikindi.
Hann vísaði í rannsóknir sem sýna að streituvaldar í vinnu, svo sem miklar kröfur og lítil stjórn á vinnustaðnum, tengist auknum líkum á fjarvistum vegna sálrænna einkenna. Þá hafi rannsóknir sýnt að veikindafjarvistir vegna kvíða og þunglyndis hafa aukist meðal ungs starfsfólks á Norðurlöndum á undanförnum árum.
Að sögn Torfa byrja fjarvistir vegna kvíða oft sem stuttar og tíðar lotur eða tímabil sem geta smám saman lengst ef ekkert er að gert.
„Markmiðið er ekki að refsa starfsfólki vegna fjarvista í vinnu, heldur að bregðast snemma við og eiga opið samtal. Þarna þurfa stjórnendur að vera vakandi og þeir þurfa líka að hafa verkfæri til að geta brugðist rétt við,“ sagði hann og hvatti til aukins samspils vinnustaða og endurhæfingar til að styðja við vellíðan og draga úr langvarandi fjarvistum.