Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. febrúar 2026

Málþing Sameykis: „Marmiðið er að lágmarka fjarveru um leið og umhyggja er sýnd í verki“

Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, sérfræðingur í heilsueflingu hjá Reykjavíkurborg. Ljósmynd/BIG

Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, sérfræðingur í heilsueflingu hjá Reykjavíkurborg, kynnti á málþingi Sameykis nýja og virkari nálgun í viðverustjórnun borgarinnar. Hún rifjaði upp að heilsustefna og uppfærð viðverustefna voru samþykktar í borgarráði árið 2023, með það að markmiði að draga úr fjarvistum með markvissum og samræmdum aðgerðum.

„Markmiðið er að lágmarka fjarveru um leið og umhyggja er sýnd í verki,“ sagði Hulda.

Heildræn nálgun á heilsu og viðveru
Reykjavíkurborg leggur áherslu á að heilsustefna og viðverustefna spili saman. Annars vegar sé lögð áhersla á forvarnir, vellíðan og heilsueflingu, hins vegar skýr viðbrögð við tíðri eða langvarandi fjarveru.

„Heilsuefling er grunnur að góðri viðveru,“ sagði Hulda og bætti við að stjórnendur gegni lykilhlutverki í að vinna gegn hárri veikindatíðni hjá Reykjavíkurborg.

Þá sagði hún að í nýrri viðverustefnu á vinnustöðum borgarinnar er meðal annars lögð áhersla á viðveru- og samtöl sem byggja á umhyggju fyrir starfsfólkinu. Að auki er lagt áherslu á samskipti við starfsfólk í langtímaveikindum og markvissa eftirfylgni að loknum veikindum. Notast er við svokallaðan Bradfordkvarða til að greina tíðni skammtímaveikinda.

„Stjórnendur leiða þetta verli en við leggjum mikla áherslu á að þeir fái þann stuðning á ráðgjöf sem þeir þarfnast. Við förum í þetta saman,“ sagði Hulda.

Hún benti jafnframt á að aukinn kraftur hafi verið settur í viðverumál, meðal annars með fjölgun sérfræðinga og markvissum stuðningi við stærstu svið borgarinnar. Erindið hennar undirstrikaði mikilvægi skýrrar stefnu hjá Reykjavíkurborg; opins samtals við stjórnendur og starfsfólk og jafnvægis milli ábyrgðar og umhyggju í viðverustjórnun.