12. febrúar 2026
Málþing Sameykis: Starfsumhverfi hefur bein áhrif á veikindafjarvistir

Harpa Hrund Berndsen. Ljósmynd/BIG
Á málþingi Sameykis í dag kynnti Harpa Hrund Berndsen niðurstöður rannsóknar sinnar um áhrif starfsumhverfis á veikindafjarvistir hjá Reykjavíkurborg. Rannsóknin hennar varpa ljósi á mikilvægi jákvæðs starfsumhverfis og sýnir fram á skýr tengsl milli líðanar í starfi og minni veikinda. Í rannsókninni byggði Harpa Hrund á þekktum fræðilegum líkönum um kröfur og úrræði í starfi og tengsl þeirra við heilsu og líðan starfsfólks. Skoðuð voru meðal annars tengsl veikindafjarvista við heildareinkunn starfsstaða, ánægju og stolt, streitu, sveigjanleika, sjálfstæði í starfi og stjórnun.
Hærri heildareinkunn – færri veikindi
Niðurstöður sýna marktæk neikvæð tengsl milli heildareinkunnar og veikindafjarvista. Fyrir hvert stig sem heildareinkunn starfsstaðar hækkar lækka veikindi að jafnaði um 1,3 prósentustig. Tengslin héldust marktæk þegar tekið var tillit til eðlis starfseminnar, en eðli starfsemi skýrir þó stóran hluta af mismunandi veikindahlutfalli milli starfsstaða.
Ánægja og stolt skipta sköpum
Sérstaklega komu fram sterk og stöðug tengsl milli ánægju og stolts starfsfólks og minni veikindafjarvista. Þá sýndu niðurstöður einnig að streita tengist auknum veikindum, í samræmi við fyrri rannsóknir og fræðilegar kenningar.
„Niðurstöðurnar sýna skýrt að það skiptir máli hvernig fólki líður í starfi. Þar sem ríkir ánægja og stolt eru veikindafjarvistir minni, en streita hefur augljós neikvæð áhrif,“ sagði Harpa Hrund í erindi sínu.
Tengsl sveigjanleika, stjórnunar og sjálfstæðis í starfi reyndust flóknari og breyttust þegar eðli starfseminnar var tekið með í reikninginn.
Starfsumhverfið skiptir máli
Í samantekt rannsóknarinnar kemur fram að starfsumhverfi hefur raunveruleg áhrif á veikindafjarvistir. Niðurstöðurnar benda til þess að markvissar aðgerðir sem styðja starfsfólk, auka vellíðan og ánægju og draga úr streitu geti dregið úr veikindafjarvistum – að teknu tilliti til eðlis og aðstæðna ólíkra starfsstaða.