13. febrúar 2026
Hæstu einkunnir frá upphafi í Stofnun ársins 2025

Niðurstöður úr mannauðskönnuninni Stofnun ársins 2025 sem Gallup framkvæmdi fyrir Sameyki liggja nú fyrir.
Niðurstöður úr mannauðskönnuninni Stofnun ársins 2025 sem Gallup framkvæmdi fyrir Sameyki liggja nú fyrir og sýna skýra og jákvæða þróun í starfsumhverfi vinnustaða á opinberum vinnumarkaði. Tæplega 18.000 starfsmenn ríkis, Reykjavíkurborgar og annarra vinnustaða tóku þátt í könnuninni í ár, sem er mesta þátttaka frá upphafi. Heildareinkunn vinnustaða hefur jafnframt aldrei mælst hærri.

Heildarniðurstöður.
Heildareinkunn allra vinnustaða er nú 4,08 á kvarðanum 1–5 og hækkar milli ára. Allir níu mældir þættir starfsumhverfis hækka frá síðustu mælingu og frá árinu 2022 hefur jákvæð þróun átt sér stað á öllum sviðum. Stjórnun vegur þyngst í heildarmati, en starfsandi og jafnrétti koma þar næst. Niðurstöðurnar gefa því sterka vísbendingu um að markviss vinna við umbætur á vinnustöðum sé að skila árangri.
Framhaldsskólar og félagsmiðstöðvar í fararbroddi
Í flokki ríkisstofnana komu framhaldsskólar sterkir inn. Menntaskólinn í Kópavogi var efstur meðal stórra stofnana, Menntaskólinn á Egilsstöðum í flokki meðalstórra og Menntaskólinn á Tröllaskaga í flokki lítilla stofnana. Menntaskólinn á Tröllaskaga hlaut jafnframt eina hæstu einkunn könnunarinnar, 4,840, og skipar sér þar með í hóp allra fremstu vinnustaða landsins.

Efstu tíu.
Hjá Reykjavíkurborg voru það Hitt Húsið sem bar sigur úr býtum meðal stærstu starfsstaða, Leikskólinn Gullborg meðal meðalstórra og Félagsmiðstöðin Vígyn – Víkurskóla meðal minnstu starfsstaðanna. Félagsmiðstöðin Vígyn hlaut hæstu heildareinkunn allra vinnustaða í könnuninni, 4,923, og stendur því uppi sem stigahæsti vinnustaðurinn.
Í flokki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja í almannaþjónustu var Gló stuðningsfélag efst, en þar á eftir komu Heilsustofnun NLFÍ og LSR.
Sé horft á hæstu einkunnir óháð flokki blasir við að minni vinnustaðir raða sér í efstu sætin. Félagsmiðstöðvar eru sérstaklega áberandi, ásamt leikskólum, sambýlum og minni skólastofnunum. Það undirstrikar hversu mikilvæg nálægð, traust og samheldni eru í daglegu starfi.
Sterk stjórnun og góður starfsandi lykillinn að árangri
Niðurstöðurnar sýna einnig að þeir vinnustaðir sem skora hæst einkennast af sterkri og traustri stjórnun, jákvæðum starfsanda og jafnrétti. Meðaleinkunn stjórnunar er 4,20 og hefur aldrei verið hærri. Starfsandi mælist 4,30 og jafnrétti 4,37, sem eru mjög háar einkunnir á fimm punkta kvarða sem miðað er við í könnuninni. Sjálfstæði í starfi og sveigjanleiki eru einnig meðal þeirra þátta sem mælast hátt, en báðir þættir skipta miklu máli í daglegu starfsumhverfi.

Sigurvegarar ríkis og borgar.
Launakjör eru áfram sá þáttur sem mælist lægstur, en hann hækkar þó mest milli ára og hefur aldrei verið hærri en nú. Eitt skýrasta mynstrið í niðurstöðunum er að minni vinnustaðir fá almennt hærri heildareinkunn en stærri vinnustaðir. Þá eru yngstu starfsmennirnir og stjórnendur að jafnaði ánægðari en aðrir hópar samkvæmt niðurstöðunum.
Borgin mælist með hærri heildareinkunn en ríkið
Þegar niðurstöður eru bornar saman milli flokka kemur í ljós að Reykjavíkurborg mælist með hærri heildareinkunn en ríkisstofnanir. Starfsstaðir borgarinnar skora sérstaklega hátt í stjórnun og starfsanda.

Stjórnun, starfsandi og jafnrétti.
Ríkisstofnanir sýna hins vegar mikinn stöðugleika í efstu sætum og framhaldsskólar eru þar áberandi ár eftir ár. Sameiginlegt með báðum flokkum er að þróunin er jákvæð og heildarniðurstöður sýna skýrt að starfsumhverfi opinberra vinnustaða hefur styrkst á undanförnum árum.
Hástökkvarar ársins
Sérstaklega má nefna hástökkvara ársins. Menntaskólinn í Reykjavík stekkur hæst meðal ríkisstofnana og Skammtímadvöl Árland hæst meðal starfsstaða borgarinnar. Það sýnir að markviss umbótavinna getur skilað skjótum og mælanlegum árangri.
Niðurstöður Stofnun ársins 2025 senda skýr skilaboð um að opinberir vinnustaðir eru á réttri leið. Sterk stjórnun, góður starfsandi, jafnrétti og sveigjanleiki eru lykilþættir árangurs í mannauðsmálum og þar standa margir vinnustaðir landsins sig með miklum sóma.
Niðurstöðurnar úr könnuninni Stofnun ársins má sjá hér.