Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

13. febrúar 2026

Stofnun ársins 2025: Metþátttaka og framúrskarandi vinnustaðir heiðrað

Titilinn Stofnun ársins hljóta þær stofnanir og starfsstaðir sem þykja skara fram úr á sviði mannauðsmála að mati starfsfólks á árinu 2025.. Ljósmyndir/BIG

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu tilkynnti um valið á Stofnun ársins við hátíðlega athöfn sem haldin var í gær. Titilinn Stofnun ársins hljóta þær stofnanir og starfsstaðir sem þykja skara fram úr á sviði mannauðsmála að mati starfsfólks á árinu 2025.


Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, setti hátíðina.

Stofnun ársins var framkvæmd í október til desember 2025. Alls fengust gild svör frá nærri 18.000 einstaklingum og hafa svörin aldrei verið fleiri. Þar af voru rúmlega 11.000 svör frá starfsfólki ríkisstofnana, ríflega 6.000 svör frá starfsfólki Reykjavíkurborgar og ríflega 800 svör frá öðrum vinnustöðum. Svarhlutfall var tæplega 52%. Þátttaka í könnuninni eftir kyni var 69% konur og 31% karlar. Fólk með annað kyn en karl eða kona var minna en 1%.


Gestir á Stofnun ársins.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana og vinnustaða, en hún nær til um 35.000 manns sem starfa á opinberum vinnumarkaði. Niðurstöður könnunarinnar veita bæði mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir.

Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og veita þeim vinnustöðum viðurkenningar sem náð hafa framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að frekari umbótum í stjórnun og starfsumhverfi vinnustaðanna. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.

Titilinn Stofnun ársins 2025 hljóta þeir vinnustaðir sem þykja skara fram úr í þeim þáttum sem mannauðskönnunin náði yfir að mati starfsfólks þeirra.

Stofnanir ársins 2025 – ríki í þremur flokkum:
Menntaskólinn á Tröllaskaga með 5-39 starfsmenn, Menntaskólinn á Egilsstöðum með 40 til 89 starfsmenn, Menntaskólinn í Kópavogi með 90 starfsmenn eða fleiri.


Guðríður Hrund Helgadóttir, Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi með starfsfólki skólans sem sigraði í flokki ríki með 90 starfsmenn eða fleiri. Með þeim á myndinni er t.v. Ingibjörg Sif Sigríðardóttir, varaformaður Sameykis og t.h. formaður Sameykis, Kári Sigurðsson.


Stofnanir ársins 2025 – borg og bær í þremur flokkum:
Félagsmiðstöðin Vígyn – Víkurskóla með 5-24 starfsmenn, Leikskólinn Gullborg með 25 til 49 starfsmenn, Hitt Húsið með 50 starfsmenn eða fleiri.


Markús H. Guðmundsson, forstöðumaður Hins hússins með sínu starfsfólki.

Hástökkvari ársins 2025:
Ríki: Menntaskólinn í Reykjavík
Borg og bær: Skammtímadvöl Árland


Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík ásamt varaformanni og formanni Sameykis. Menntaskólinn í Reykjavík var hástökkvari í Stofnun ársins í flokknum ríki.


Ánægt starfsfólk hjá Skammtímadvöl Árland sem var hástökkvari í flokknum Borg og bær. Rakel Ósk Jóhannesdóttir forstöðumaður, Sunna Dís Jónasdóttir, Daníel Þór Friðriksson, Karen Lind Ívarsdóttir, teymistjórar.

Stofnanir ársins 2025 – einn flokkur. Sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu: Gló stuðningsfélag.


Bergljót Borg, framkvæmdastjóri Gló stuðningsfélags.

Niðurstöðurnar voru kynntar að loknu vel heppnuðu málþingi um mannauðsmál og var yfirskrift þess Virkni og vellíðan á vinnumarkaði. Fyrirlesarar á málþinginu voru: Tómas Bjarnason doktor í félagsfræði og Harpa Hrund Berndsen mannauðssérfræðingur, Jens Näsström vinnu- og skipulagssálfræðingur, Hulda Sólveig Jóhannsdóttir mannauðssérfræðingur, og Torfi Már Jónsson sálfræðingur.

Málþingsstjóri var Sirrý Arnardóttir, fjölmiðlakona.


Sirrý Arnardóttir stýrði málþingi Sameykis og hátíðinni Stofnun ársins.

Við hjá Sameyki óskum vinningshöfum til hamingju með árangurinn og viðurkenningarnar í Stofnun ársins 2025.

Frekari upplýsingar um könnunina má sjá í fylgiriti hér.
Ljósmyndir frá viðburðinum má sjá í myndasafni Sameykis hér.