Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. febrúar 2026

BSRB gagnrýnir harðlega tillögur ríkisstjórnarinnar um styttingu atvinnuleysisbótakerfisins

BSRB gagnrýnir harðlega áform ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um styttingu bótatímabils og breytingar á atvinnuleysistryggingum. Samsett mynd/Sameyki

BSRB gagnrýnir harðlega tillögur ríkisstjórnarinnar í umsögn sinni um frumvarp til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, þar sem ríkisstjórnin leggur til verulegar skerðingar á réttindum atvinnuleitenda. Samkvæmt frumvarpinu er hugmyndin að stytta hámarkstíma atvinnuleysisbóta úr 30 mánuðum í 18 mánuði, sem nemur 40 prósenta niðurskurði á því tímabili sem hefur lengi verið grundvallarréttur á íslenskum vinnumarkaði. BSRB bendir á að þessi breyting hafi verið sett fram án samráðs við aðila vinnumarkaðarins og hafi í raun komið á óvart í ljósi vinnu sem unnin var í sérstöku samstarfshópi á vegum stjórnvalda þar sem fulltrúar aðila vinnumarkaðar sameinuðust um tillögu um 24 mánaða bótatímabil og aukin virkniúrræði.

Í umsögninni lýsir BSRB því yfir að sú tillaga að atvinnuleitendur verði fyrst tryggðir innan kerfisins eftir tólf mánaða starf á vinnumarkaði í stað þriggja mánaða eins og núgildandi lög segja til um, sé órökstudd og skaðleg breyting sem muni hafa gríðarleg slæm áhrif á marga hópa í samfélaginu. BSRB segir að frumvarpið fari gegn niðurstöðu nefndar sem starfaði í tvö ár að heildarendurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar og hafi verið í anda samninga og málamiðlana aðila vinnumarkaðarins.

BSRB gagnrýnir enn fremur breytingar á stjórnskipulagi kerfisins, þar á meðal hugmyndir ríkisstjórnarinnar um að leggja niður Atvinnuleysistryggingasjóð og breyta hlutverki stjórnar Vinnumálastofnunar, án þess að neinn rökstuðningur fyrir þessum breytingum komi fram í frumvarpinu. BSRB bendir á að tölulegur grunnur frumvarpsins sé veikur og að fullyrðingar um minnkandi langtímaatvinnuleysi séu ekki studdar gögnum, þar sem langtímaatvinnuleysi hefur, ef eitthvað er, aukist á undanförnum árum og spár Hagstofunnar gera ráð fyrir hækkandi atvinnuleysi á næstu árum.

Í lokaorðum umsagnarinnar leggst BSRB alfarið gegn efni frumvarpsins, segir það skorta bæði framtíðarsýn og traustan rökstuðning og hvetur til þess að horft verði sérstaklega til þeirrar tillögu sem samstarfshópurinn náði saman um, ef breytingar á réttindum atvinnuleitenda eiga að koma til greina.

Sjá greiningu Hagstofu Íslands hér þar sem segir að af þeim voru 221.800 starfandi og 11.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall þeirra af mannfjölda, eða atvinnuþátttaka, var 80,0 prósent. Hlutfall starfandi einstaklinga af mannfjölda var 76,0 prósent og atvinnuleysi var 5,0 prósent af öllum 16-74 ára á vinnumarkaði.

Umsögn BSRB má lesa hér.