Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. febrúar 2026

Fleiri í þjónustu Virk en nokkru sinni fyrr

Fjöldi umsókna aukist verulega síðustu mánuði ársins, en 27% fleiri beiðnir bárust síðustu þrjá mánuði ársins 2025.

Árið 2025 var metár hjá VIRK – Starfsendurhæfingarsjóði, en samtals 2.576 einstaklingar hófu starfsendurhæfingu hjá sjóðnum, sem er 205 fleiri en árið áður og 8,6% fjölgun frá árinu 2024. Þessi aukning endurspeglar áþreifanlega eftirspurn eftir starfsendurhæfingu og stuðningi til þátttöku á vinnumarkaði sem VIRK veitir.

Í lok árs voru 2.984 einstaklingar í þjónustu hjá VIRK, sem er 7,1% fleiri en um síðustu áramót, og frá upphafi hafa tæplega 27.000 manns hafið starfsendurhæfingu hjá VIRK. Þegar litið er á ferla í upplýsingakerfinu eru skráðir yfir 31.000 starfsendurhæfingarferlar frá stofnun sjóðsins árið 2008, þar sem margir hafa nýtt sér þjónustuna oftar en einu sinni.


Árið 2025 var metár hjá VIRK: 2.576 hófu starfsendurhæfingu, 205 fleiri en árið áður (+8,6% frá 2024).

Jafnframt hefur fjöldi umsókna aukist verulega síðustu mánuði ársins, en 27% fleiri beiðnir bárust síðustu þrjá mánuði ársins 2025 samanborið við sama tíma 2024, sem gefur til kynna áframhaldandi vöxt í aðsókn.

Þá voru 2.095 þjónustuþegar útskrifaðir árið 2025, 196 fleiri en árið áður, eða 9,3% aukning. Af þeim sem útskrifast hafa til þessa eru um 80% virkir á vinnumarkaði við útskrift – annaðhvort í starfi, í atvinnuleit eða í lánshæfu námi – sem sýnir að starfsendurhæfingin skilar raunverulegum árangri fyrir langflesta þátttakendur