21. febrúar 2026
Formaður BHM gagnrýnir áróður Viðskiptaráðs gegn launafólki

Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM. Samsett mynd/Sameyki
Viðskiptaráð Íslands, hagsmunasamtök stærstu fyrirtækja landsins, hefur hafið áróður gegn veikindarétti launafólks. Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, gagnrýnir framsetningu Viðskiptaráðs á veikindarétti opinberra starfsmanna og segir orðræðuna áróður gegn launafólki fremur en upplýsta umræðu. Í pistli sínum á Vísi „Loks slitnaði rófan! Hvað gengur Viðskiptaráði til?“ lýsir hún því hvernig Viðskiptaráð dreifir villandi upplýsingum um veikindarétt starfandi á vinnumarkaði, í stað þess að horfa gagnrýnum augum á stöðuna og rót vandans.
Kolbrún bendir á að Viðskiptaráð hafi fullyrt að veikindaréttur opinberra starfsmanna sé allt að sjöfaldur miðað við almenna markaði og að veikindafjarvistir séu tvöfalt algengari og kosti ríkið tugmilljarða á ári. Kolbrún segir slíka framsetningu rangfærslur og að gögnin sem ráðið byggi á séu bæði eldri og ófullnægjandi til að draga ályktanir um raunverulega stöðu í þessum málum.
Þá segir Kolbrún að þegar gögn séu skoðuð með samræmdum hætti komi fram að aukin veikindaforföll verði frekar skýrð með kerfislægu álagi, streitu og manneklu hjá starfsfólki sem starfar í grunnþjónustunni, frekar en misnotkun réttinda. Hún segir að umræðan þurfi að byggjast á gagnadrifnum og sambærilegum tölum fremur en dramatískum sleggjudómum og fullyrðingum sem standast ekki. „Ef samfélagið ætlar að draga úr veikindaforföllum þarf umræðan að byggjast á vönduðum og sambærilegum gögnum,“ skrifar Kolbrún og vísar þar í opninbera og almenna vinnumarkaðinn.
Pistillinn endar á því að Kolbrún hvetur til þess að þeir sem sinna hagsmunagæslu fyrir launafólk sameinist um að afla betri gagna til að styðja við upplýsta umræðu því óvandaður samanburður Viðskiptaráðs á veikindarétti milli vinnumarkaða leiði umræðuna á villigötur.