Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

21. febrúar 2026

Formaður KÍ líkir málflutningi Viðskiptaráðs við djöflasýru

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands,. Samsett mynd/Sameyki

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, gagnrýnir harðlega málflutning Viðskiptaráðs Íslands um veikindarétt opinberra starfsmanna og vinnumarkaðinn í pistli sem hann birti á Vísi í dag. Hann segir málflutning Viðskiptaráðs ómaklegan og beinlínis árásargjarnan í garð launafólks.

„Í liðinni viku ákvað Viðskiptaráð, ja eða einstaklingar á þeirra vegum, að gera tilraun til Íslandsmets í niðurrifsorðræðu með atrennu. Tilraunin fólst í aðför að veikindarétti hóps sem af einhverjum ástæðum virðist vera í miðjupunkti píluspjaldsins hjá Viðskiptaráði. Opinbert starfsfólk.“

Þá lýsir Magnús Þór því hvernig Viðskiptaráð valdi tölur og tímabil sem gefa óraunhæfa mynd af veikindarétti opinberra starfsmanna og segir málflutninginn óboðlegan og hvetur til málefnalegri umræðu um kjör og stöðu launafólks í stað þess að nota slíka niðurrifsorðræðu. Þá hvetur hann Viðskiptaráð að hafa manndóm í sér og koma hreint fram í sínum málflutningi.

„Ef markmiðið er að færa stærri hluta opinberrar þjónustu yfir til einkaaðila, þá á að hafa kjark til að segja það beint. Við getum tekið þá umræðu af yfirvegun og ábyrgð. En að bera á borð djöflasýru eins og þá sem birtist í niðurrifi á heilu starfsstéttunum – það er ekki stefnumótun. Það er pólitísk herferð.“

Lesa má skoðanapistil Magnúsar Þórs hér.