Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

10. mars 2026

Ný tryggingavernd styður þolendur ofbeldis í nánu sambandi

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, t.h. og Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkahlíðar t.v. Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir

Vörður tryggingar hefur kynnt nýja tryggingavernd, svokallað stuðningsleyfi, sem ætlað er að auðvelda atvinnurekendum að styðja starfsfólk sem er að vinna sig út úr ofbeldissambandi. Með úrræðinu geta fyrirtæki fengið bætur fyrir launað leyfi starfsmanns í allt að tvær vikur þannig að viðkomandi geti sinnt málum sem tengjast því að breyta aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap.

Ofbeldi í nánu sambandi hefur víðtæk áhrif á líf fólks, þar á meðal á stöðu þess á vinnumarkaði. Rannsóknir sýna að þolendur geta veigrað sér við að breyta aðstæðum sínum meðal annars vegna ótta við að missa tekjur eða þurfa að vera frá vinnu. Stuðningur á vinnustað getur því skipt sköpum þegar fólk reynir að komast út úr slíkum aðstæðum.

„Ofbeldi í nánum samböndum er samfélagslegt mein sem varðar okkur öll. Með aukinni fræðslu getum við frekar stutt við og aukið líkur á að fólki takist að breyta aðstæðum sínum. Með stuðningsleyfinu er atvinnurekendum auðveldað að styðja við starfsfólk sitt í þessum aðstæðum,“ segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar trygginga, í fréttatilkynningu.

Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir mikilvægt að vinnustaðir taki þátt í að styðja þolendur: „Vinnustaðurinn er oft eini snertiflötur þolenda fyrir utan heimilið og stuðningur frá vinnuveitanda getur skipt sköpum þegar fólk reynir að komast út úr ofbeldissambandi.“

Stuðningsleyfið bætist við ákveðnar fyrirtækjatryggingar Varðar, þar á meðal slysatryggingar launþega og sjúkra- og slysatryggingar, án aukakostnaðar fyrir viðskiptavini.

Samhliða innleiðingu úrræðisins verður einnig boðið upp á fræðslu í samstarfi við Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, með það að markmiði að auka þekkingu á vinnustöðum um merki ofbeldis og hvernig bregðast megi við.

Sjá nánari upplýsingar um stuðningsleyfið á nýjum vef verkefnisins hér.
Sjá fréttatilkynningu frá Verði tryggingum hér.

Sjá tengt efni hér fyrir neðan:

Ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðurinn

Í samstarfi við BSRB

Ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðurinn

Fjallað um tengsl ofbeldis í nánum samböndum og stöðu þolenda á vinnumarkaði, og hvers vegna vinnustaðir og stéttarfélög skipta þar máli.

Lesa á bsrb.is →