16. mars 2026
Fundargögn aðalfundar Sameykis aðgengileg í dag

Fundargögn fyrir aðalfund Sameykis verða aðgengileg á Mínum síðum Sameykis í lok dags í dag, mánudaginn 16. mars.
Fundargögn fyrir aðalfund Sameykis verða aðgengileg á Mínum síðum Sameykis í lok dags í dag, mánudaginn 16. mars. Þar má meðal annars nálgast ársskýrslu félagsins, ársreikning, tillögur að lagabreytingum og drög að ályktunum aðalfundar.
Gögnin eru birt tíu dögum fyrir aðalfund í samræmi við lög félagsins og gefst félagsfólki þannig kostur á að kynna sér efni fundarins áður en hann fer fram.
Aðalfundur Sameykis verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 16:30 á Grand hótel Reykjavík, í fundarsalnum Háteigi á efstu hæð.
Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar og afgreiðsla ársreiknings. Þá verður einnig lögð fram tillaga um að Póstmannafélag Íslands sameinist Sameyki, auk þess sem fjallað verður um tillögur að lagabreytingum og ályktanir aðalfundar.
Félagsfólk er hvatt til að kynna sér fundargögnin og taka þátt í aðalfundinum.
Skráning á aðalfund Sameykis