Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. mars 2026

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir nýr framkvæmdastjóri BSRB

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB. Hún hefur víðtæka reynslu af störfum á sviði vinnumarkaðs- og efnahagsmála og hefur starfað um árabil fyrir verkalýðshreyfinguna.

Sigríður Ingibjörg starfaði áður sem hagfræðingur hjá BSRB í sjö ár og áður sem hagfræðingur hjá ASÍ í fjögur ár. Hún sat jafnframt á Alþingi á árunum 2009–2016 þar sem hún gegndi meðal annars formennsku í velferðarnefnd og fjárlaganefnd. Þá hefur hún starfað sem sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu og hjá Hagstofu Íslands.

Í tilkynningu frá BSRB segir Sigríður Ingibjörg að verkalýðshreyfingin standi á tímamótum og að mikilvægt sé að halda áfram að verja réttindi launafólks og bæta kjör þess. Hún segist hlakka til að takast á við verkefnin með forystu og starfsfólki bandalagsins.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir ráðninguna mikinn feng fyrir bandalagið og bendir á að Sigríður Ingibjörg búi yfir mikilli reynslu á sviði vinnumarkaðsmála og hafi sýnt í störfum sínum hjá BSRB að hún sé öflugur talsmaður opinberrar þjónustu og betri lífskjara launafólks.