Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

20. mars 2026

Ríkisstjórnin hyggst svipta launafólk réttindum sínum - Sameyki hvetur félagsfólk að kynna sér áformin

Verði áminningarskyldan afnumin er hætt við að réttaröryggi launafólks veikist og að líkur á ósanngjörnum uppsögnum aukist sem er óhugsandi á vinnumarkaði á hinum Norðurlöndunum.

Sameyki hvetur félagsfólk sitt og annað launafólk til að kynna sér ítarlega áform ríkisstjórnarinnar um að afnema áminningarskyldu úr lögum og þær afleiðingar sem slík breyting getur haft á réttaröryggi og starfsöryggi opinberra starfsmanna og vinnumarkaðinn allan.

Á upplýsingavefnum góðáminning.is er að finna skýrar og aðgengilegar upplýsingar um hvað áminningarskylda felur í sér, hvers vegna hún er grundvallarþáttur í ráðningarvernd og hvaða réttindi eru í húfi. Þar má jafnframt lesa greinar og álit sem varpa ljósi á málið frá ólíkum hliðum, auk þess sem svarað er algengum spurningum um framkvæmd og áhrif lagabreytinganna.

Áminningarskyldan tryggir að starfsfólk fái formlega málsmeðferð og raunhæft tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar. Hún er ekki formsatriði heldur mikilvæg vernd sem stuðlar að sanngirni, jafnræði og faglegri stjórnsýslu. Verði hún afnumin er hætt við að réttaröryggi launafólks veikist og að líkur á ósanngjörnum uppsögnum aukist sem er óhugsandi á vinnumarkaði á hinum Norðurlöndunum.

Á vefnum Góð áminning er meðal annars fjallað um hvers vegna réttindi launafólks eru afrakstur áratugalangrar baráttu, hvaða áhrif breytingarnar geta haft á vinnumarkaðinn í heild og hvers vegna mikilvægt er að standa vörð um ráðningarvernd.

Sameyki hvetur félagsfólk til að kynna sér málið vel, deila upplýsingum áfram og fylgjast með framvindu þess.

Sameyki mun áfram standa vörð um réttindi félagsfólks og hafna öllum tilraunum til að veikja þau réttindi sem byggð hafa verið upp í áratugi.

👉 Kynntu þér málið á góðáminning.is

Sjá umfjallanir og fréttir Sameykis um málið

Góð áminning um sjálfsögð réttindi
Pistill formanna BSRB, KÍ og Fíh

Góð áminning um sjálfsögð réttindi

Formenn stéttarfélaganna fjalla um áform ríkisstjórnarinnar og vara við fordæmalausri skerðingu á ráðningarvernd launafólks.

Lesa pistil →
Höfnum afnámi áminningarskyldu – herferðin hefst í dag
Frétt

Höfnum afnámi áminningarskyldu – herferðin hefst í dag

Sameiginleg herferð stéttarfélaga gegn áformum ríkisstjórnarinnar er farin af stað.

Lesa grein →
Myndband
Alvarleg aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum opinberra starfsmanna
Grein

Alvarleg aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum opinberra starfsmanna

Lesa grein →
Árás á réttindi launafólks – Ögmundur Jónasson gagnrýnir áform um afnám áminningarskyldu
Eldri frétt

Árás á réttindi launafólks – Ögmundur Jónasson gagnrýnir áform um afnám áminningarskyldu

Lesa grein →
Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar gagnrýna ríkisstjórnina harðlega
Eldri frétt

Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar gagnrýna ríkisstjórnina harðlega

Lesa grein →