Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

21. mars 2026

Ný vefsíða útskýrir hvers vegna áminningarskylda skiptir máli

Ný vefsíða, Góð áminning, hefur verið sett í loftið sem hluti af herferð stéttarfélaga og bandalaga þeirra gegn áformum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að afnema áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.

Markmið síðunnar er að varpa ljósi á mikilvægi áminningarskyldu í ráðningarsambandi og útskýra hvaða áhrif afnám hennar getur haft á réttaröryggi og stöðu launafólks. Þar er jafnframt dregið fram að áminningarskylda er lykilþáttur í sanngjarnri málsmeðferð og tryggir starfsfólki raunhæft tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar.

Á síðunni er efni sem ætlað er að auka skilning almennings á málinu og styðja við umræðu um réttindi á vinnumarkaði. Hún er liður í víðtækari herferð BSRB, KÍ og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem hafa varað við því að fyrirhugaðar lagabreytingar feli í sér alvarlega skerðingu á ráðningavernd tugþúsunda sem starfa á vinnumarkaði.

Sameyki hvetur félagsfólk og almenning til að kynna sér efnið og taka þátt í umræðunni um mikilvægi réttinda launafólks Góð á¬minning um sann¬girni
á vinnumarkaði.

Nýjar umfjallanir Sameykis um málið

Ríkisstjórnin setur réttindi tugþúsunda opinberra starfsmanna í uppnám
Frétt

Ríkisstjórnin setur réttindi tugþúsunda opinberra starfsmanna í uppnám

Áformin fela í sér alvarlega skerðingu á ráðningavernd og réttaröryggi.

Lesa grein →
Góð áminning um sanngirni
Pistill

Góð áminning um sanngirni

Formenn stéttarfélaga fjalla um mikilvægi áminningarskyldu og sanngjarnrar málsmeðferðar.

Lesa pistil →