Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

21. mars 2026

Ríkisstjórnin setur réttindi tugþúsunda opinberra starfsmanna í uppnám

Tugir þúsunda opinberra starfsmanna standa frammi fyrir því að ríkisstjórnin ætli sér að skerða réttindavernd á vinnumarkað

Áform ríkisstjórnarinnar um að afnema áminningarskyldu snerta ekki lítinn afmarkaðan hóp á vinnumarkaði heldur þúsundir starfsmanna sem halda uppi grunnþjónustu samfélagsins. Starfsfólk ríkisins er á bilinu 20–25 þúsund manns og opinberi vinnumarkaðurinn í heild telur um 40–50 þúsund manns, eða um fimmtung allra starfandi á Íslandi.

Þetta er fólkið sem starfar í heilbrigðisþjónustu, menntun og skólasamfélagi, löggæslu og réttarkerfi, stjórnsýslu og þjónustu við íbúa landsins og félags- og velferðarþjónustu. Það er fólkið sem almenningur treystir á á hverjum degi þegar leita þarf til heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins og réttarkerfisins, og þegar stjórnsýslan sinnir lögbundnum verkefnum sínum um land allt.

Þegar tugir þúsunda opinberra starfsmanna standa frammi fyrir því að ríkisstjórnin ætli sér að skerða réttindavernd á vinnumarkaði er hún ekki aðeins að breyta lögum sem hafa tekið áratuga baráttu, hún er að grafa undan stöðugleika á vinnumarkaði og fagmennsku í opinberri þjónustu. Slíkar fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, að stuðla að afregluvæðingu vinnumarkaðarins, þættu óhugsandi á hinum Norðurlöndunum. Íslenskur vinnumarkaður hefur byggst upp að norrænni fyrirmynd þar sem vinnumarkaðslíkanið styðst við samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og virkt samráð við stéttarfélög. Með aðgerðum sínum sniðganga Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stéttarfélög og víkja frá þeirri norrænu hefð sem íslenskur vinnumarkaður hefur byggst á.

Afnám áminningarskyldu er hluti af ráðningarvernd sem tryggir sanngjarna málsmeðferð áður en til uppsagnar kemur. Afnám hennar úr lögum þýðir aukið óöryggi á vinnustöðum sem þegar glíma víða við manneklu og mikið álag. Slíkt hefur óhjákvæmilega áhrif opinbera innviði, vinnumarkað, starfsskilyrði og þar með á þá þjónustu sem almenningur nýtur.

Kynntu þér málið nánar á góðáminning.is


Sjá umfjallanir Sameykis um málið

Ríkisstjórnin setur réttindi tugþúsunda opinberra starfsmanna í uppnám
Frétt

Ríkisstjórnin setur réttindi tugþúsunda opinberra starfsmanna í uppnám

Áformin snerta fimmtung vinnumarkaðarins og grunnþjónustu samfélagsins.

Lesa grein →
Góð áminning um sjálfsögð réttindi
Pistill formanna BSRB, KÍ og Fíh

Góð áminning um sjálfsögð réttindi

Formenn stéttarfélaga vara við fordæmalausri réttindaskerðingu.

Lesa pistil →
Alvarleg aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum opinberra starfsmanna
Grein

Alvarleg aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum opinberra starfsmanna

Greining á því hvernig afnámið veikir ráðningarvernd.

Lesa grein →