Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

23. mars 2026

Harðorð gagnrýni um niðrandi orð Diljár Mistar um opinbert starfsfólk

Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins við umræður á Alþingi um afnám áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur opinberra starfssmanna.

Formenn BSRB, KÍ og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýna harðlega í sameiginlegum pistli orð Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem lýsti opinberum starfsmönnum sem „Birkenstock-liði“ á Alþingi.

„Á Alþingi í vikunni var opinberum starfsmönnum lýst sem týpum sem eru samgróin Birkenstock inniskónum sínum. Væntanlega hefur viðkomandi séð fyrir sér stelpurnar sem starfa á spítalanum druslast sín 10.000 skref á vaktinni í inniskónum,“ segir í pistli þeirra.


Sjá ummæli þingmanns Sjálfstæðisflokksins Diljár Mistar Einarsdóttur á Alþingi á 10:05 mínútu.

Í pistlinum benda þau á að slík orðræða sýni alvarlegan skort á virðingu fyrir því fólki sem heldur uppi grunnþjónustu samfélagsins. Um er að ræða starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, löggæslu og víðar sem sinnir krefjandi störfum við aukið álag, manneklu og sífellt meira ofbeldi í starfi. Formennirnir segja að á sama tíma og þessi staða versni sé brugðist við með því að veikja réttindi starfsfólks, meðal annars með áformum um afnám áminningarskyldu. Slíkt sé skýr forgangsröðun hjá ríkisstjórninni; minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi grunnþjónustuna í samfélaginu.
Í pistli formannanna er undirstrikað að áminningarskyldan sé lágmarksvernd gegn geðþótta og óréttlæti stjórnenda gagnvart starfsfólki auk þess sé áminningarskyldan nauðsynlegur ferill í að bæta vinnustaði og hjálpar stjórnendum að bregðast rétt við. Að afnema hana muni ekki leysa raunveruleg vandamál heldur grafa undan trausti og gera opinber störf síður eftirsóknarverð.

Tengt efni
Góð áminning um Birkenstock-liðið
Pistill
Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Formenn gagnrýna niðrandi umræðu og minna á mikilvægi opinbers starfsfólks sem heldur uppi grunnþjónustu samfélagsins.

Lesa pistil →

Ríkisstjórnin hyggst svipta launafólk réttindum sínum
Frétt
Ríkisstjórnin hyggst svipta launafólk réttindum sínum Sameyki hvetur félagsfólk til að kynna sér áformin og áhrif þeirra á ráðningavernd og réttindi.

Lesa grein →

Ný vefsíða útskýrir hvers vegna áminningarskylda skiptir máli
Frétt
Ný vefsíða útskýrir hvers vegna áminningarskylda skiptir máli Á nýrri vefsíðu er farið yfir mikilvægi áminningarskyldu og áhrif hennar á réttindi starfsfólks.

Lesa grein →