25. mars 2026
Öfugmæli forsætisráðherra

Kristrún frostadóttir fór með öfugmæli um launafólk um helgina.
Formenn BSRB, Kennarasambands Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga halda áfram skrifum sínum og gagnrýni á áform ríkisstjórnarinnar um afnám áminningarskyldu. Í nýjasta pistli þeirra gagnrýna þau harðlega Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og segja orð hennar um að standa vörð um réttindi og hún beri virðingu fyrir launafólki ekki standast.
Í pistlinum vísa þau sérstaklega til orða forsætisráðherra: „Við jafnaðarfólk leggjum áherslu á virðingu, að standa vörð um réttindi,“ sem hún lét falla um helgina. Að mati formannanna sýna aðgerðir ríkisstjórnarinnar hins vegar hið gagnstæða, enda leggi stjórnvöld fram frumvarp sem skerðir verulega réttindi tug þúsunda launafólks.
Þau segja að virðing forsætisráðherra og ríkisstjórnar hennar gagnvart opinberu starfsfólki sé því í raun engin og að stjórnvöld standi alls ekki vörð um réttindi launafólks. Þvert á móti leggi ríkisstjórnin áherslu á að skerða réttindi í stað þess að bæta starfsaðstæður og styrkja opinbera þjónustu.
Formennirnir leggja áherslu á að afnám áminningarskyldu sé ekki umbót heldur skýr atlaga að ráðningaröryggi opinberra starfsmanna og grafi undan þeim réttindum sem byggð hafa verið upp í áratugi. Slík stefna sé bæði óábyrg og í andstöðu við þau gildi sem stjórnvöld segjast standa fyrir.
Að lokum hvetja þau launafólk og almenning til að kynna sér málið nánar á upplýsingasíðunni góðáminning.is, þar sem fjallað er ítarlega um áhrif fyrirhugaðra breytinga og mikilvægi áminningarskyldu fyrir réttindi og starfsöryggi.
Tengt efni