Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

26. mars 2026

Fjármálaráðherra sagt upp störfum

Ríkisstarfsmenn segja Daða Má Kristóferssyni upp störfum og tekur gildi fyrirvaralaust strax í dag.

Beitt satíra er birt í nýrri auglýsingu sem birtist á bls. 9 í Morgunblaðinu í dag sem speglar afleiðingar afnáms áminningarskyldu úr lögum. Þar er fjármálaráðherra, Daða Má Kristóferssyni, sagt upp störfum fyrirvaralaust. Um er að ræða ádeilu þar sem beitt er sömu rökum og ríkisstjórnin hefur lagt til grundvallar í frumvarpi um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna.

Í auglýsingunni, sem er sett fram sem formlegt uppsagnarbréf, segir meðal annars:

„Samkvæmt nýju fyrirkomulagi hefur áminningarskylda verið afnumin. Það þýðir að ekki er lengur gerð krafa um að veitt sé áminning eða gefið sé tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar.“

Þar er jafnframt tekið fram að mistök í starfi séu „ekki lengur liðin“ og að „enginn fær annan séns.“ Á þeirri forsendu sé tekin ákvörðun um uppsögn ráðherrans „án aðvörunar“ og að starfslok hans verði samdægurs. Ekkert gult spjald, engin áminning, bara rautt spjald. Rekinn!


Ríkisstarfsmenn segja Daða Má Kristóferssyni, fjármálaráðherra, upp störfum fyrirvaralaust.

Bréfið er stílað á Daða Má Kristófersson, Arnarhvoli við Lindargötu, og dagsett 26. mars 2026. Undir lokin eru lesendur hvattir til að fylgjast vel með hvaða réttindi ríkisstjórnin afnemi næst. Að auglýsingunni standa BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands, og vísar hún á upplýsingasíðuna góðáminning.is.

Með þessari ádeilu er dregin upp skýr spegilmynd af þeim breytingum sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, með fjármálaráðherra í fararbroddi, hyggst ráðast í – að skerða réttindi tugþúsunda launafólks. Skilaboðin eru skýr: Ef áminningarskyldan er afnumin, gæti enginn átt von á tækifæri til að bera hönd yfir höfuð sér. Geðþóttaákvarðanir stjórnenda munu ráða því hver verður rekinn og hver ekki. Reglur á vinnumarkaði eru ekki formsatriði – þær eru grunnstoðir réttlætis, jafnræðis og trausts.

Sjá auglýsingu hér


Tengt efni
Öfugmæli forsætisráðherra
Frétt
Öfugmæli forsætisráðherra Formenn gagnrýna harðlega orð Kristrúnar Frostadóttur um að standa vörð um réttindi launafólks á sama tíma og ríkisstjórnin leggur fram frumvarp um réttindaskerðingu.

Lesa grein →
Góð áminning um virðingu
Pistill
Góð áminning um virðingu Formenn BSRB, KÍ og Fíh gagnrýna mótsögn milli orða og verka ríkisstjórnarinnar og segja forsætisráðherra skorta virðingu fyrir opinberu starfsfólki.

Lesa pistil →