27. mars 2026
Ályktanir aðalfundar Sameykis 2026

Frá aðalfundi Sameykis 2026
Aðalfundur Sameykis, sem haldinn var 26. mars samþykkti tvær veigamiklar ályktanir þar sem stjórnvöld eru gagnrýnd harðlega fyrir annars vegar breytingar á starfsmannalögum og hins vegar fyrir efnahagsstefnu sína.
1. Ályktun aðalfundar Sameykis um áform ríkisstjórnarinnar að afnema áminningarskylduna úr lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna
Aðalfundur Sameykis gagnrýnir harðlega áform ríkisstjórnarinnar um að afnema áminningarskyldu úr starfsmannalögum. Slík breyting er alvarleg aðför að réttindum og starfsöryggi opinberra starfsmanna og grefur undan grundvallarreglum réttlátrar málsmeðferðar í opinberri stjórnsýslu.
Áminningarskyldan er hornsteinn réttlátrar málsmeðferðar og tryggir að starfsfólk fái sanngjarnt tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar eða annarra agaviðurlaga. Með því að afnema þessi lög eru opinberir starfsmenn gerðir berskjaldaðri gagnvart geðþóttaákvörðunum stjórnenda og veikir það réttaröryggi sem telst sjálfsagt í nágrannaríkjum Íslands.
Aðalfundur Sameykis telur að slík afturför samræmist hvorki alþjóðlegum vinnuréttarviðmiðum né þeim gildum um réttlæti, traust og fagmennsku sem opinber þjónusta á að byggja á. Opinberir starfsmenn halda uppi grunnþjónustu samfélagsins og eiga rétt á skýrum og réttlátum leikreglum í starfi og þess er krafist að ríkisstjórnin dragi þessi áform tafarlaust til baka og tryggi að réttindi opinberra starfsmanna verði ekki skert heldur séu í samræmi við alþjóðleg viðmið og norræna fyrirmynd.
2. Ályktun aðalfundar Sameykis um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar
Aðalfundur Sameykis lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri efnahagsstefnu sem ríkisstjórnin hefur fylgt í baráttunni við verðbólgu. Sú nálgun sem nú er viðhöfð byggir í auknum mæli á aðhaldi sem lendir fyrst og fremst á heimilum og launafólki, á sama tíma og misskipting eykst og lífskjör margra versna. Aðalfundur Sameykis hafnar þeirri hugmynd að lausnin á efnahagsvandanum felist í því að velta byrðum verðbólgunnar yfir á heimilin eða þrengja að velferðarkerfinu.
Fundurinn varar jafnframt við því að núverandi þróun setji kjarasamninga í verulega hættu. Samningarnir byggja á skýru forsenduákvæði um að verðbólga haldist innan ákveðinna marka, en viðmiðið er 4,7% verðbólga. Nú mælist verðbólga 5,4% og er því yfir þeim mörkum sem samningarnir gera ráð fyrir. Haldi þessi þróun áfram með tilheyrandi kaupmáttarskerðingu er raunveruleg hætta á að forsendur kjarasamninganna bresti.
Aðalfundur Sameykis skorar á stjórnvöld og atvinnurekendur að axla sameiginlega ábyrgð á lausn efnahagsvandans í raunverulegu samstarfi við stéttarfélögin og bandalög þeirra. Launafólk getur ekki borið byrðarnar eitt og sér. Nauðsynlegt er að ráðast í aðgerðir sem draga úr verðbólgu án þess að auka misskiptingu eða sem ógna kjarasamningum og skerða lífskjör almennings.