27. mars 2026
Trúnaðarmenn ársins heiðraðir á aðalfundi Sameykis

Ottó Hörður Guðmundsson og Kristbjörg H. Guðmundsdóttir eru trúnaðarmenn ársins 2025. Ljósmynd/BIG
Á aðalfundi Sameykis, sem haldinn var í gær, voru trúnaðarmenn ársins 2025 heiðraðir fyrir framúrskarandi störf í þágu félagsmanna og réttindabaráttu þeirra á sínum vinnustöðum.
Að þessu sinni hlutu tveir trúnaðarmenn viðurkenninguna, þau Ottó Hörður Guðmundsson og Kristbjörg H. Guðmundsdóttir, en bæði hafa þau sýnt einstakan dugnað og elju í störfum sínum fyrir Sameyki.
Ottó Hörður Guðmundsson hefur sinnt trúnaðarmannastörfum samfellt frá árinu 2007 og býr yfir mikilli reynslu á sviði réttindabaráttu. Hann hefur verið þekktur fyrir einarða afstöðu gegn óréttlæti og hefur óþreytandi unnið að því að tryggja réttindi samstarfsfólks síns. Þá hefur hann tekið virkan þátt í félagsstarfi Sameykis, meðal annars í kjörstjórn, starfskjaranefnd, fulltrúaráði og samninganefndum. Ottó starfar í Grafarvogslaug og á að baki langan starfsferil.
Kristbjörg H. Guðmundsdóttir hefur gegnt hlutverki trúnaðarmanns í tvö kjörtímabil og látið til sín taka með markvissum hætti. Hún átti frumkvæði að stofnun vaktavinnuhóps sem hittist reglulega og vinnur að umbótum á vaktakerfum með það að markmiði að bæta starfsskilyrði vaktavinnufólks, meðal annars með tilliti til komandi kjarasamninga. Kristbjörg hefur einnig verið mjög virk í störfum trúnaðarmanns á sínum vinnustað og lagt sitt af mörkum til að bæta aðstæður samstarfsfólks. Hún starfar í stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands.
Í ræðu á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi trúnaðarmanna í daglegu starfi stéttarfélagsins og þann kraft sem þeir færa inn í réttindabaráttu launafólks. Viðurkenningin er veitt til að draga fram framúrskarandi framlag þeirra sem leggja sig fram um að bæta vinnuumhverfi og verja réttindi félagsmanna.
Sameyki þakkar þeim Ottó og Kristbjörgu fyrir vel unnin störf og óskar þeim innilega til hamingju með viðurkenninguna.