Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. mars 2026

Útúrsnúningar ríkisstjórnarinnar duga skammt þegar réttindi launafólks eru skert

Opinberir starfsmenn. Ljósmyndir/Sigurður Ó. Sigurðsson

Formenn BSRB, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasambands Íslands segja í nýrri skoðanagrein, „Ríkisstjórn útúrsnúninga?“ sem birtist á Vísi að ríkisvaldið brjóti í bága við grundvallarréttindi launafólks þegar það leggur til afnám áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Þau segja að orðaræða fjármálaráðherra um mannauðsstjórnun geti ekki falið þá réttindaskerðingu sem ríkisstjórnin stendur fyrir og þar skorti fagleg rök fyrir þeim alvarlegu breytingum á réttarstöðu launafólks.

Formennirnir benda jafnframt á að rökstuðningur ríkisstjórnarinnar hafi verið á reiki frá upphafi. Frumvarpið hafi fyrst verið kynnt sem hagræðing, síðar sem jöfnun réttinda og nú sem mannauðsmál. Slíkur breytilegur rökstuðningur styrki ekki trúverðugleika málsins heldur gefi til kynna að verið sé að leita að réttlætingu eftir á. Þá benda formennirnir á að breytingin myndi fella brott lögbundna skyldu til að veita áminningu og raunhæft tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar. Ríkisstjórnin hefur haldið því fram að í 99,9% tilvika fái starfsfólk tækifæri til að bæta sig áður en til uppsagnar kemur. En sá veruleiki verður auðvitað ekki lengur tryggður í lögum ef áminningarskyldan verður felld brott. Munurinn er snýst um grundvallaratriði, það sem áður var lögbundinn réttur verður að geðþóttaákvörðun. Réttaröryggi byggir ekki á slíku, heldur á því sem er tryggt í lögum. Þegar verndin er tekin úr lögunum er hún ekki lengur sjálfgefin heldur verður hún háð vilja stjórnenda hverju sinni sem ríkisstjórnin leggur til að verði venjan.

Þau benda einnig á að raunin sé sú að ekki allir vinnustaðir eru fyrirmyndar vinnustaðir, eins og árlegar niðurstöður úr könnunum um Stofnun ársins sýna. Þar kemur skýrt fram að víða er þörf á úrbótum í stjórnun, samskiptum og starfsanda. Það er einmitt á slíkum vinnustöðum sem lögbundin vernd skiptir mestu máli. Réttaröryggi á ekki að ráðast af því hvort starfsmaður starfar á fyrirmyndarvinnustað eða ekki.

Formennirnir vara einnig við fordæmisáhrifum breytingarinnar. Með því að veikja ráðningarvernd ríkisstarfsmanna sé verið að skapa hættulegt fordæmi sem geti haft áhrif víðar á vinnumarkaði. Réttindi sem veikjast á einum stað standi sjaldnast óhögguð annars staðar. Þau minna jafnframt á að traust ráðningarvernd sé hornsteinn norræna vinnumarkaðsmódelsins og teljast sjálfsögð réttindi á hinum Norðurlöndunum, þar sem breytingar af þessu tagi eru óhugsandi. Rétt er að taka fram að slík réttindaskerðing fer þvert gegn þeim meginreglum sem endurspeglast í samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um réttláta málsmeðferð og vernd gegn óréttmætum uppsögnum.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, gagnrýnir einnig frumvarpið harðlega í grein á Vísi undir fyrirsögninni „Aðför að opinberum starfsmönnum – burðarásum samfélagsins“. Hún segir að hugmyndin um að fella niður áminningarskyldu sé sett fram sem tæknileg einföldun á mannauðsstjórnun en sé í raun grundvallarbreyting á réttindum stórs hóps opinberra starfsmanna.

Rósa Björk bendir á að þessi réttindi séu ekki smáatriði heldur hluti af þeirri stoð sem tryggi sanngjarna málsmeðferð og vernd gegn geðþóttaákvörðunum stjórnenda. Hún segir að slík aðför veikji stuðning við grunnþjónustu samfélagsins; heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, löggæslu, stjórnsýslu og félags- og velferðarþjónustu þar sem opinberir starfsmenn séu burðarás þeirra kerfa sem almenningur treystir á hverjum degi.


Tengt efni
Ríkisstjórn útúrsnúninga
Pistill
Ríkisstjórn útúrsnúninga? Formenn BSRB, Kennarasambands Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýna málflutning stjórnvalda og vara við skerðingu á réttindum opinberra starfsmanna.

Lesa pistil →
Aðför að opinberum starfsmönnum – burðarásum samfélagsins
Skoðun á Vísi
Aðför að opinberum starfsmönnum – burðarásum samfélagsins Rósa Björk Brynjólfsdóttir fjallar um mikilvægi réttinda opinberra starfsmanna og varar við afleiðingum fyrirhugaðra lagabreytinga.

Lesa á Vísi →
Góð áminning
Upplýsingasíða
Góð áminning Kynntu þér mikilvægi áminningarskyldu og áhrif hennar á réttindi og réttaröryggi launafólks.

Heimsækja vefsíðu →