31. mars 2026
Sameyki hvetur til umsagna: Hægt að senda Alþingi skilaboð í eigin nafni

Á vefsíðunni Góð áminning er hægt að senda umsögn beint til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna fyrirhugaðs afnáms áminningarskyldu
Á vefsíðunni Góð áminning hefur verið opnað fyrir þann möguleika að almenningur sendi umsagnir beint til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna fyrirhugaðs afnáms áminningarskyldu ríkisstarfsmanna.
Í gegnum síðuna geta einstaklingar sent inn umsögn í eigin nafni með einföldum hætti. Boðið er upp á staðlaðan texta sem hægt er að styðjast við, en jafnframt er eindregið hvatt til þess að fólk bæti við persónulegum athugasemdum, svo sem um starf sitt og hvaða áhrif breytingarnar hefðu á þeirra vinnuumhverfi.
Í staðlaða textanum er meðal annars bent á að áminningarskylda sé mikilvæg réttindavernd á vinnumarkaði sem tryggi fagleg vinnubrögð og verndi starfsfólk gegn geðþóttaákvörðunum stjórnenda. Þar er jafnframt varað við því að afnám hennar feli í sér afturför í mannauðsmálum fremur en umbætur.
Sameyki hvetur félagsfólk sitt og aðra til að nýta sér þennan möguleika og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við Alþingi. Mikilvægt sé að raddir launafólks heyrist í umræðunni um réttindi á vinnumarkaði.
Athygli er vakin á því að aðeins er hægt að senda eina umsögn úr hverju netfangi.
Tengt efni