Þversögn í veikindaleyfum:
Hvers vegna eru það hæfustu einstaklingarnir sem brenna út?
Ný sýn á streitu meðal afkastamikils starfsfólks og leiðtoga
Jens Näsström er vinnu- og skipulagssálfræðingur og óháður rannsakandi með yfir 20 ára reynslu af ráðgjöf fyrir stjórnendur og mannauðssérfræðinga sem starfa í afkastamiklu og krefjandi starfsumhverfi. Í fyrirlestrinum fjallar hann um sjónarhorn sem sameinar starfshæfni og rannsóknir, þar sem hann fléttar saman vísindarannsóknum, hagnýtri þjálfun og samtölum sínum við mannauðsstjórnendur og sérfræðinga til að styðja við sjálfbæran árangur og draga úr sálrænum áhættuþáttum m.a. „ofur frammistöðu“ starfsfólks á vinnumarkaði.Rannsóknir Jens ögra hefðbundnum hugmyndum um hvatningu, streitu og seiglu og hann hvetur stjórnendur vinnustaða til að leggja áherslu á nákvæmari og fyrirbyggjandi nálgun á frammistöðu og vellíðan á vinnustöðum til framtíðar.
Hann segir að á vinnustöðum þar sem áhersla er lögð á þekkingu er áhyggjuefni að þar birtist ákveðin þversögn sem felst í að þrátt fyrir hagstæð vinnuskilyrði fer streitutengt veikindaleyfi vaxandi á vinnumarkaði. Jens segir athyglisvert að það eru oft metnaðarfyllstu, hæfustu og samviskusömustu einstaklingarnir sem verða verst úti. Hvers vegna gerist þetta — og ekki síður, er hægt að koma í veg fyrir það?
Í fyrirlestri Jens kemur fram rannsóknamiðað sjónarhorn á forvarnir gegn streitu og kulnun. Áherslan færist frá hefðbundnum ramma vinnuverndar og öryggis yfir á innri sálræna drifkrafta sem móta upplifun fólks af vinnu, sérstaklega meðal þeirra sem standa sig hvað best.
Þessi nálgun er sérstaklega gagnleg fyrir mannauðssérfræðinga og stjórnendur sem glíma við flókin veikindaleyfismál, eða vilja grípa snemma inn í til að vernda vellíðan og viðhalda frammistöðu áður en vandinn magnast.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.