Val á Stofnun ársins, Fyrirmyndarstofnunum og Hástökkvara ársins byggir á mati starfsmanna og eru niðurstöðurnar mælikvarði á frammistöðu stofnana þegar kemur að stjórnun, starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, sveigjanleika og sjálfstæði í starfi, ímynd stofnana og jafnrétti.
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Almennt er miðað við að þátttakendur séu í a.m.k. 20% starfshlutfalli og hafi starfað á vinnustaðnum í þrjá mánuði eða lengur. Þetta viðmið er notað svo svarendur séu betur í stakk búnir til að meta starfsumhverfi sitt með áreiðanlegum hætti.
Ábyrgð á könnuninni er eftirfarandi:
- Reykjavíkurborg er ábyrgðaraðili gagnvart sínu starfsfólki.
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið er ábyrgðaraðili gagnvart starfsfólki ríkisins.
- Sameyki er ábyrgðaraðili könnunarinnar gagnvart sínu félagsfólki. Sameyki hefur m.a. það hlutverk að berjast fyrir réttindum félagsmanna sinna, bæta aðbúnað þeirra, veita þeim ýmiskonar þjónustu og móta kröfur fyrir þeirra hönd í kjarasamningum. Sameyki kannar kjör, aðstæður og viðhorf sinna félagsmanna til að geta sinnt þörfum þeirra og hagsmunum betur.
- Ef stofnun, vinnustaður eða fyrirtæki óskar eftir þátttöku í könnuninni að eigin frumkvæði, þá er sá vinnustaður ábyrgðaraðili gagnvart sínu starfsfólki.
- Gallup á Íslandi sér alfarið um vinnslu könnunarinnar, gagnaöflun, varðveislu gagna og skýrslugerð (Gallup er vinnsluaðili). Sjá nánari upplýsingar hér.
Dettur þú í lukkupottinn?
Úr hópi svarenda Sameykis félaga verða alls dregnir 12 vinningar úr innsendum svörum:
- Tvö gjafabréf frá Icelandair, að verðmæti 60.000.- kr. hvert
- Fjögur gjafakort í Hörpuna, að verðmæti 30.000.- kr. hvert
- Helgardvöl í orlofshúsum félagsins, samtals fimm vinningar
- Vikudvöl í orlofshúsum félagsins á Spáni, einn vinningur