Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Framkvæmd könnunar

Þátttakendur í Stofnun ársins hafa aldrei verið fleiri en nú, en í ár tóku tæplega 18.000 þátt í könnuninni. Reykjavíkurborg er þátttakandi í könnuninni með allt starfsfólk í fjórða sinn en allt ríkisstarfsfólk hefur tekið þátt síðan 2011. Niðurstöður verða í þremur stofnanaflokkum, líkt og síðustu ár. Flokkarnir eru: ríkisstofnanir, starfsstaðir Reykjavíkurborgar, og sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu.

Stofnun ársins var framkvæmd í október til desember 2025. Þátttökulistar (netfangalistar) ríkisstofnanna komu almennt frá Skrifstofu kjara- og mannauðsmála. Við gerð þátttökulista var miðað við að starfsfólk væri starfandi í ágúst og október og væri í að lágmarki 20% starfshlutfalli. Listi yfir starfsfólk borgarinnar kom frá Mannauðs- og starfsumhverfissviði borgarinnar. Sjálfseignarstofnanir, fyrirtæki og fleiri vinnustaðir geta óskað eftir þátttöku fyrir allt starfsfólk óháð félagsaðild og senda þá þessir vinnustaðir þátttökulista til Gallup. Sex slíkir vinnustaðir tóku þátt í ár og greiða sjálfir fyrir þátttöku starfsfólks utan Sameykis. Þetta voru Ás styrktarfélag, Félagsbústaðir, Heilsustofnun NLFÍ, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), Matís ohf. og Orkubú Vestfjarða (OV).

Um könnunina

Stofnun ársins er samstarfsverkefni margra aðila; Sameykis, Skrifstofu kjara- og mannauðsmála, Mannauðs- og starfsumhverfissviðs borgarinnar og svo stofnananna og vinnustaðanna sjálfra. Niðurstöður könnunarinnar veita afar mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir. Í könnuninni er hægt að bera saman starfsumhverfi ríkis og borgar með góðum hætti. Einnig er hægt að bera saman niðurstöður þessarar könnunnar við niðurstöður á almennum markaði þar sem VR framkvæmir sambærilega könnun, „Fyrirtæki ársins,“ meðal félagsfólks VR og fyrirtækja á almennum markaði.

Tilgangur könnunarinnar

Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.

Hvernig fer könnunin fram?

Spurningalisti er lagður fyrir starfsfólk á netinu. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti, en þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi vinnustaðanna. Spurningalistinn er sá sami og notaður hefur verið undanfarin ár og niðurstöður því sambærilegar við fyrri ár.

 

Hvernig eru þættirnir búnir til?

Þáttagreining (factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir. 

Í megindráttum komu fram níu þættir, en þeir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægja og stolt og jafnrétti. 

Vægi þáttanna í heildareinkunn ákvarðast af þáttagreiningunni (sjá mynd) en vinnustöðunum er síðan raðað eftir heildareinkunninni. Áreiðanleiki þáttanna (Cronbach's Alpha) er mikill og mældist hæstur fyrir stjórnun (0,95), en lægstur fyrir sveigjanleika (0,82).

Alls fengust gild svör frá nærri 18.000 einstaklingum og hafa svörin aldrei verið fleiri. Þar af voru rúmlega 11.000 svör frá starfsfólki ríkisstofnana, ríflega 6.000 svör frá starfsfólki Reykjavíkurborgar og ríflega 800 svör frá öðrum vinnustöðum. Svarhlutfall, gildir listar af endanlegu úrtaki, var tæplega 52%, sem er sama hlutfall og á síðasta ári.

 

 

Starfsstaðir og stofnanir á lista

Stofnanir sem uppfylla þátttökuskilyrði (35% svarhlutfall og að lágmarki 5 svör) komast á lista. Þessum stofnunum er skipt í flokka eftir eðli þeirra og stærð. Stofnanaflokkarnir eru þrír: starfsstaðir borgarinnar (274 starfsstaðir), ríkisstofnanir (139 stofnanir) og svo fyrirtæki og sjálfseignarstofnanir (7 fyrirtæki/sjálfseignarstofnanir). Þessi hluti könnunarinnar byggir á 8.949 svörum frá starfsfólki ríkisins, 5.482 svörum frá starfsfólki borgarinnar og 463 svörum frá starfsfólki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja.

Þátttökuskilyrði

Til að stofnun, starfsstaður eða fyrirtæki komi til greina í vali á Stofnun ársins þurfa svör að vera að lágmarki fimm og svarhlutfall að lágmarki 35% – þá er miðað við innsenda lista sem hlutfall af útsendum spurningalistum. Ef vinnustaður býður ekki öllu starfsfólki þátttöku eru þátttökuskilyrði önnur og þá eru auk þess gerðar kröfur um fjölda þátttakenda eftir því sem vinnustaðurinn stækkar.

Könnunin nær til allra starfsstaða Reykvíkurborgar, allra ríkisstofnana sem og til alls félagsfólks Sameykis sem er í 20% starfshlutfalli eða meira og hefur verið félagsfólk í a.m.k. þrjá mánuði. Félagsfólk Sameykis starfar víða, t.d. hjá ríki og sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum í annarri opinberri eigu. Þessir vinnustaðir eru einnig með í vali á Stofnun ársins svo fremi sem þeir uppfylli þátttökuskilyrðin (sjá ofan). Þá geta þessir vinnustaðir óskað eftir þátttöku í Stofnun ársins og boðið öllu starfsfólki að svara könnuninni.

Nánari umfjöllun um helstu niðurstöður allra stofnana og heildarniðurstöður (tæplega 18.000 svör) eftir þáttum er að finna hér í sérritinu Stofnun ársins.