
Helstu niðurstöður
Þetta er fjórða árið sem Reykjavíkurborg tekur þátt fyrir allt starfsfólk. Alls náðu 274 starfsstaðir lágmarksviðmiðum og taka þátt í vali á Stofnun ársins – borg og bær. Listanum er skipt í þrennt, þ.e. litlir, meðalstórir og stórir starfsstaðir.
Í flokki stórra starfsstaða, starfsfólk 50 og fleiri, eru 47 starfsstaðir, í flokki meðalstóra starfsstaða, starfsfólk er 25-49, eru 78 starfsstaðir og í flokki lítilla starfsstaða, starfsfólk er 5-25, eru 149 starfsstaðir.
Stofnanir ársins eru þrjár: Hitt Húsið er sigurvegari í flokki stórra starfsstaða. Leikskólinn Gullborg er sigurvegari í flokki meðalstórra starfsstaða og Félagsmiðstöðin Vígyn - Víkurskóla bar sigur úr býtum í flokki lítilla starfsstaða.
Fyrirmyndarvinnustaðir
Í hverjum stærðarflokki hljóta efstu fimm stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir. Í hópi stærstu starfsstaða eru fimm fyrirmyndarstarfsstaðir. Sigurvegarinn í hópi stærstu starfsstaða er Hitt Húsið, eins og áður hefur komið fram, en þau voru einnig í fyrsta sæti í fyrra og í hittifyrra í milli stórum flokki. Í öðru sæti er Leikskólinn Rauðhóll sem einnig var í öðru sæti í fyrra. Álftamýrarskóli er í þriðja sæti en hann var í fjórða sæti í fyrra. Háteigsskóli, er í fjórða sæti en hann var í þriðja sæti í fyrra. Í fimmta sæti er Skrifstofa velferðarsviðs. Mikill stöðugleiki er því í efstu sætunum, eins og sjá má.
Fyrirmyndarstofnanir - borg og bær (starfsfólk er 50 og fleira)
1. Hitt Húsið
2. Leikskólinn Rauðhóll
3. Álftamýrarskóli
4. Háteigsskóli
5. Skrifstofa velferðarsviðs
Sigurvegari í hópi starfsstaða í millistærð er Leikskólinn Gullborg sem var í öðru sæti í fyrra. Leikskólinn Álftaborg er í öðru sæti en var í fjórða sæti í fyrra. Í þriðja sæti er svo Skammtímadvöl Árlandi, en það er einnig sá starfsstaður sem stekkur hæst allra starfsstaða borgarinnar. Félagsmiðstöðin Askja er í fjórða sæti, en hún náði ekki inn á lista í fyrra. Íbúðakjarni Kambavaði er svo í fimmta sæti, en þau voru einnig hátt á lista í fyrra, þó þau hafi ekki komist inn á lista fyrirmyndarstofnana.
Fyrirmyndarstofnanir - borg og bær (starfsfólk er 25 til 49)
1. Leikskólinn Gullborg
2. Leikskólinn Álftaborg
3. Skammtímadvöl Árland
4. Félagsmiðstöðin Askja
5. Íbúðarkjarni Kambavaði
Félagsmiðstöðvar eru áberandi á lista fyrirmyndarstarfsstaða í flokki minnstu starfsstaðanna. Í efsta sæti er Félagsmiðstöðin Vígyn en hún var ofarlega á lista í fyrra, þó hún fengi ekki sæmdarheitið „Fyrirmyndarstarfsstöð.“ Holtið er í öðru sæti og hún var einnig ofarlega í fyrra, þó ekki væri hún í efstu fimm sætunum. Í þriðja sæti er Fjörgyn sem einnig var í þriðja sæti í fyrra. Í fjórða sæti er Félagsmiðstöðin 105 sem var í fimmta sæti í fyrra. Í fimmta sæti er svo Buskinn sem einnig var ofarlega fyrir ári, þó að hún hafi ekki náð inn á lista fimm efstu..
Fyrirmyndarstofnanir - borg og bær (starfsfólk er 5 til 24)
1. Félagsmiðstöðin Vígyn - Víkurskóla
2. Félagsmiðstöðin Holtið - Norðlingaskóla
3. Félagsmiðstöðin Fjörgyn - Foldaskóla
4. Félagsmiðstöðin 105
5. Félagsmiðstöðin Buskinn
Hvaða vinnustaður stekkur hæst?
Hástökkvari starfsstöðva borgarinnar er Skammtímadvöl Árland. Við útreikning á hásökkvurum er notuð sama aðferð og sagt er frá hér að ofan. Með þessari reikniaðferð stekkur Skammtímadvöl Árland hæst allra, eða um 60 sæti.
Hér má nálgast heildarlista yfir starfsstaði Reykjavíkurborgar.
Sameyki óskar starfsfólki og stjórnendum þessara starfsstaða innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.