
Helstu niðurstöður
Stofnanir ársins eru þrjár: Menntaskólinn í Kópavogi er sigurvegari í flokki stærri stofnana. Menntaskólinn á Egilsstöðum er sigurvegari í flokki meðalstórra stofnana og Menntaskólinn á Tröllaskaga bar sigur úr býtum í flokki minni stofnananna.
Val á stofnun ársins fer þannig fram að valin er stofnun með hæstu heildareinkunn sem uppfyllir þátttökuskilyrði úr þremur stærðarflokkum og bera þessar þrjár stofnanir heitið „Stofnun ársins“. Í heildina komust 139 ríkisstofnanir á lista; 52 stofnanir þar sem færri en 40 starfa, 41 stofnun þar sem starfsfólk er 40-89 talsins og 46 stofnanir þar sem starfa 90 eða fleiri.
Fyrirmyndarstofnanir
Í hverjum stærðarflokki hljóta efstu fimm stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir. Þrír framhaldsskólar eru í efstu fimm sætunum, í flokki stærri stofnana, eins og í fyrra. Skólarnir í tveimur efstu sætum hafa sætaskipti. Menntaskólinn í Kópavogi er sigurvegari stórra stofnana, en hann var í öðru sæti í fyrra. Í öðru sæti er Fjölbrautarskóli Suðurnesja sem var í fyrsta sæti í fyrra. Vínbúðin er í þriðja sæti, Fjölbrautarskólinn við Ármúla í því fjórða og Fjármála- og efnahagsráðuneytið í því fimmta. Þessar stofnanir hafa oft verið meðal efstu stofnana.
Fyrirmyndarstofnanir (starfsfólk er 90 og fleira)
1. Menntaskólinn í Kópavogi
2. Fjölbrautaskóli Suðurnesja
3. Vínbúðin - ÁTVR
4. Fjölbrautaskólinn við Ármúla
5. Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Í flokki meðalstórra stofnana er sigurvegarinn Menntaskólinn á Egilsstöðum. Þjóðskrá Íslands er í öðru sæti, en hún var í fyrsta sæti í fyrra. Menntaskólinn á Ísafirði er í þriðja sæti en skólinn var í öðru sæti í fyrra. Stofnun Árna Magnússonar er í fjórða sæti og Fjölbrautarskólinn í Garðabæ í því fimmta en báðar þessar stofnanir hafa verið ofarlega á lista síðustu ár..
Fyrirmyndarstofnanir (starfsfólk er 40-89)
1. Menntaskólinn á Egilsstöðum
2. Þjóðskrá Íslands
3. Menntaskólinn á Ísafirði
4. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
5. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Mikill stöðugleiki er í efstu sætunum í flokki minni stofnana. Fjórar af þessum fimm stofnunum voru í fimm efstu sætum í fyrra. Menntaskólinn á Tröllaskaga er í efsta sæti. Hann var í þriðja sæti í fyrra og öðru sæti í hitteðfyrra. Í öðru sæti er Kvikmyndasafn Íslands sem var sigurvegarinn í fyrra. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í þriðja sæti en hann var í öðru sæti í fyrra og efsta sæti í hitteðfyrra. Verkmenntaskóli Austurlands er í fjórða sæti og hann tekur gott stökk frá mælingunni í fyrra. Í fimmta sætinu er svo Þjónustumiðstöð fyrir blinda og sjónskerta og þau vermdu einnig fimmta sætið í fyrra.
Fyrirmyndarstofnanir (starfsfólk er 5-39)
1. Menntaskólinn á Tröllaskaga
2. Kvikmyndasafn Íslands
3. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
4. Verkmenntaskóli Austurlands
5. Þjónustumiðstöð fyrir blinda og sjónskerta
Hástökkvari ríkisstofnana
Hvaða stofnun stekkur hæst? Hástökkvari ríkisstofnanna árið 2025 er Menntaskólinn í Reykjavík.
Skólinn stekkur hæst allra ríkisstofnana, eða um 31 sæti. Þá er átt við sæti á raðeinkunninni. Við útreikning á hástökkvurum er fyrst reiknuð raðeinkunn fyrir allar stofnanir á bilinu 1-100 og svo er reiknaður munur á raðeinkunn milli ára.
Hér má nálgast heildarlista fyrir stofnanir ríkisins.
Sameyki óskar starfsfólki og stjórnendum þessara stofnana innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.