Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Upplýsingar um úthlutanir o.fl.

Á Orlofshúsavef Sameykis er bókað og sótt um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísun og fleira. Hér eru allar helstu upplýsingar um þessa þjónustu.
Halda áfram

Orlofshús, úthlutanir og fleira

Á Orlofshúsavef Sameykis bókar þú og sækir um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísun og fleira þar sem stendur Gjafabréf í flug og fl. í valmyndinni. Einnig má finna afslátt á ýmsum vörum og þjónustu fyrir félagsfólk Sameykis, þar sem stendur Afslættir. Framvísa þarf félagsskírteini en það má finna inn á Mínar síður Sameykis.

 

Vetrarleiga 2025–2026 (utan úthlutunartíma): Bókanir innanlands og íbúðir á Spáni

Haust 2025 opnaði fyrir bókanir 15. apríl 2025.

Vor 2026 opnaði fyrir bókanir 4. september 2025.

Haust 2026 

Opnað verður fyrir bókanir (fyrstur kemur fyrstur fær innanlands og í íbúðunum á Spáni 29. apríl 2026.

Opið verður fyrir umsóknir fyrir húsið á Tenerife frá 27. apríl til 4. maí 2026. Úthlutað verður 7. maí. Greiðslufrestur er til 15. maí. Eftir það opnar bókunarvefurinn frá 20.–27. maí fyrir þá félaga sem fengu neitun. Þá opnar fyrir alla félaga (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem enn er laust.

Athugið að félagar sem leigðu á Tenerife árið 2025 koma ekki til greina í úthlutunum á Tenerife árið 2026.

Úthlutanir og opnanir orlofshúsa 2026

Umsóknartímabil opna klukkan 9 að morgni á upphafsdegi og loka klukkan tólf á hádegi á lokadegi. Greiðslufrestur er til tólf á hádegi. Önnur úthlutun og almenn opnun hefst klukkan eitt eftir hádegi.

StaðurUmsóknartímabilÚthlutaðGreiðslufr.2. úthlutunAlmenn opnun
Páskar erlendis18. des. 2025 til 12. jan.14. jan.21. jan.22. jan.29. jan.
Sumar erlendis12. jan. til 9. feb.11. feb.18. feb.19. feb.26. feb.






Páskar innanlands15. jan. til 16. feb.18. feb.25. feb.26. feb.5. mars
Sumar innanlands23. feb. til 23. mars27. mars8. apríl13. apríl20. apr.
Sumar dagleiguhús



13. apríl


Umsóknir frá lokum ágúst og til áramóta

StaðurUmsóknartímabilÚthlutaðGreiðslufr.2. úthlutunAlmenn opnun
Innanlands og Alicante



29. apríl
Umsóknir Tenerife27. apríl til 4. maí7. maí15. maí20. maí27. maí


Úthlutunartími: Páskar, sumar og Tenerife allt árið

Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabili sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsfólks. Niðurstöður úthlutunar eru sendar í tölvupósti með tilgreindum greiðslufresti. Það er á ábyrgð umsækjenda að vera með rétt netfang skráð, athugið að pósturinn getur farið í spam/ruslpóst.
Einnig er hægt að sjá hvort að umsókn hafi verið samþykkt eða synjað inni á orlofsvefnum.

Athugið! Félagar í lífeyrisdeild getur ekki sótt um í páskaúthlutun og á tímabilinu 19. júní–07. ágúst 2026. Þeir geta bókað á þessu tímabili þegar opnað verður fyrir allt félagsfólk eftir að úthlutun lýkur – fyrstur kemur fyrstur fær.

 

Páskar á Spáni 2026

Opið er fyrir páskaúthlutun á orlofseignum Sameykis á Spáni frá 18. desember 2025 til 12.  janúar 2026 á Orlofshúsavef Sameykis. Um er að ræða raðhús í Los Cristianos á Tenerife, íbúð í Quesada í Alicante og íbúð við ströndina Los Arenales í Alicante.  Úthlutað verður vikunni 2. apríl til 9. apríl (fim–fim). Umsóknartímabilið er 18 dessember 2025–12.  janúar 2026. Úthlutun fer fram 14. janúar. Greiðslufrestur er til 21. janúar. Eftir það, 22. janúar opnast bókunarvefurinn fyrir það félaaga sem fékk neitun til 29. janúar þegar opnar fyrir alla félagmenn (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem er enn laust um páska.

Athugið að félagar sem leigðu á Tenerife árið 2025 kemur ekki til greina í úthlutunum á Tenerife árið 2026.

Páskar innanlands 2026 

Umsóknartímabilið er 15. janúar til 16. febrúar og hægt er að fylla út umsóknir á orlofsvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 18. febrúar. Greiðslufrestur er til  25. febrúar. Eftir það, 26. febrúar, opnast bókunarvefurinn fyrir það félagsfólk sem fékk neitun til 05. mars þegar opnar fyrir alla félagmenn (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem er enn laust um páska.

Sumar á Spáni 2026

Umsóknartímabil er 12. janúar–9. febrúar og hægt er að fylla út umsóknir á bókunarvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 11. Febrúar. Greiðslufrestur er til 18. febrúar. Eftir það, 19. febrúar, opnast bókunarvefurinn fyrir félagsfólk sem fékk neitun til 26. febrúar þegar opnar fyrir allt félagsfólk (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem er enn laust yfir sumarið.

Athugið að félagar sem leigðu á Tenerife árið 2025 kemur ekki til greina í úthlutunum á Tenerife árið 2026.

Sumar innanlands 2026

Umsóknartímabil er 23. febrúar til 23. mars og hægt er að fylla út umsóknir á bókunarvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 27. mars eftir punktakerfi. Greiðslufrestur er til  08. apríl. Eftir það, 13. apríl opnast bókunarvefurinn fyrir það félagsfólk sem fékk neitun til 20. apríl þegar opnar fyrir allt félagsfólk (fyrstur kemur fyrstur fær) til að bóka það sem er enn laust yfir sumarið.

Opnað verður fyrir leigu á dagleiguhúsunum 13. apríl.

Verð á miðum 2025

Veiðikortið 6.300 kr. Útilegukortið 17.500 kr. Ferðaávísun, niðurgreiðsla orlofssjóðs 30% af kaupverði en að hámarki 15.000 kr. Gjafabréf Icelandair 22.500 kr. fyrir 30.000 kr. inneign. 

Til þess að kaupa miða er farið inn á Orlofshúsavefinn og valið er Gjafabréf í flug og fl.  í valmyndinni.

 

Félagsfólk getur haft samband við skrifstofu félagins í s. 525-8330 eða sent tölvupóst á sameyki@sameyki.is til frekari upplýsinga eða til að fá aðstoð. Allar nánari upplýsingar eru á Orlofshúsavef Sameykis.