1. maí í Reykjavík

Kl: 13:00-14:30
Staðsetning: Skólavörðuholt og Ingólfstorg
Við sköpum verðmætin er yfirskrift 1. maí að þessu sinni.
Dagskrá 1. maí 2025 í Reykjavík
- 13:00 - Safnast saman á Skólavörðuholti.
- 13:30 - Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og
Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og
Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og í göngunni
niður á Ingólfstorg. - 14:00 - Útifundur hefst á Ingólfstorgi.
Fundarstýra er Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir sviðshöfundur og listakona.
Margrét Pétursdóttir mun táknmálstúlka.
Dagskráin verður jafnframt textatúlkuð á ensku.
Ræðu flytja Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir
rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ.
Mammaðín og Una Torfa munu taka lagið og í lok fundarins verður samsöngur.