Trúnaðarmannanám - Vaktavinna
.jpg?proc=singleNews)
Á námskeiðinu verður fjallað um þann hluta kjarasamnings sem snýr sérstaklega að starfsfólki í vaktavinnu. Farið verður yfir vinnuskyldu út frá starfshlutfalli, gerð vaktskrár, lengd vakta, breytingu á vaktskrá, vaktahvata, vægi vinnustunda, vaktaálag
yfirvinnu og stórhátíðarkaup. Skoðað verður hvernig vinnuskylda reiknast eftir styttingu vinnuvikunnar í samhengi við vetrarfrí og bætingu sem var í fyrra kerfi, m.a. með jöfnun vinnuskyldu við dagvinnufólk í huga. Þá verður einnig farið yfir reglur um hvíldartíma og frítökurétt auk orlofsútreikninga.
Markmiðið með námskeiðinu er að trúnaðarmaður:
- Þekki helstu hugtök vaktavinnukaflans.
- Þekki útreikninga á vinnuskilum.
- Þekki reglur sem fjalla um gerð vaktskrár, framlagningu og breytingar á þeim.
- Þekki útreikninga á vaktahvata, álagsgreiðslum og yfirvinnu.
- Geti útskýrt breytingar sem tengjast jöfnun vinnuskila milli fólks í vaktavinnu og dagvinnu.
- Þekki reglur um hvíldartíma og orlofsútreikninga.
Námskeiðið var upphaflega sett á 3. október, en var fært yfir á 28. nóvember.