Aðalfundur Sameykis

Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Samkvæmt lögum Sameykis skal hann haldinn fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í starfi og mótun félagsins til framtíðar.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn. Óskað er eftir að félagsfólk skrái sig fyrir kl. 16 miðvikudaginn 25. mars. Skráning lokar 26. mars kl. 12.
Skráning á aðalfund
Dagskrá aðalfundar:
1. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
2. Lagðir fram til staðfestingar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið almanaksár og fjárhagsáætlun ársins kynnt.
3. Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytinga og breytinga á reglum sjóða.
5. Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
7. Ákveðið árgjald félagsfólks og skipting þess milli sjóða.
8. Sameining við Póstmannafélag Íslands
8. Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
9. Önnur mál.