Kyrrðargöngunámskeið

Hvar finnst þér gott að ganga? Oft göngum við okkar vanabundna hring í okkar vanabundna göngutakti eða strunsum til að koma blóðinu á hreyfingu og komast yfir sem mesta vegalengd á sem stystum tíma. Sem er frábært! En hvað gerist ef við hægjum á? Á þessu námskeiði verður farið í leiddar kyrrðargöngur eða hæglætisgöngur í þremur ólíkum náttúruperlum þar sem gengið verður með vatni, skógi og hafi. Gengið verður að hluta til í þögn.
Fyrir hverja göngu verður fræðsla um áhrif náttúru á jákvæða heilsu; vellíðan, endurheimt og streitulosun.
Hver tími hefst á fræðslu og svo er ekið í 5-10 mínútur að gönguleiðum.
Dagsetningar: Mánudagar 23. og 30. október og 6. nóvember
Tími: 17:00-19:00
Lengd: 6 klst.
Staður: Vinnustofa Sögu, Flatahraun 3, 2. hæð, Hafnarfirði.
Leiðbeinendur: Eigendur fræðslufyrirtækisins Saga Story House hafa áralanga reynslu af náttúrumeðferð. Þær hafa undanfarin ár boðið upp á náttúrunámskeið við streitu allan ársins hring og hafa leitt yfir 500 kyrrðargöngur með hópa:
- Guðbjörg Björnsdóttir iðjuþjálfi, MA-diplóma í jálvæðri sálfræði, yogakennararéttindi
- Ingibjörg Valgeirsdóttir, MBA, MA-diplóma í jálvæðri sálfræði, BA.-uppeldis- og menntunarfræðum, yogakennararéttindi