Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. desember 2022

8.000.000.000 manna, ágirnd og Jesúbarnið

15. nóvember síðastliðinn fæddist enn eitt Jesúbarnið í heiminum, Jesúbarn númer 8.000.000.000.

„Jólabarnið helgar sig snauðum og fátækum, og á Íslandi eru vissulega margir sem lepja dauðann úr skel. 350 þúsund krónur á mánuði eru háð og spé þegar leiga fyrir tveggja herbergja íbúð er 250 þúsund á mánuði, það kostar 45 þúsund að láta draga úr sér brotinn jaxl og kíló af ýsuflökum kostar 4 þúsund krónur.“

Eftir Kristófer Inga Svavarsson

15. nóvember síðastliðinn fæddist enn eitt Jesúbarnið í heiminum, Jesúbarn númer 8.000.000.000. Hvort Kaspar, Melkjór og Baltasar gáfu því gull, reykelsi og myrru kom ekki fram í fréttatilkynningu Sameinuðu þjóðanna. Hins vegar benda samtökin á að menn, karlar og konur, verði um 9 milljarðar talsins 2037, og 10 milljarðar tuttugu árum síðar, eða 2057. Þá gæti horft til vandræða um skiptingu lífsins gæða, baráttan um brauðið yrði blóðugri en nokkru sinni fyrr í sögu þessarar spendýrategundar, homo sapiens sapiens, sem obbinn af félögum Sameykis heyrir til.

Hvað er til ráða?
Afnám auðvaldsskipulagsins, kapítalismans, með gjörbyltingu hugarfars, ástríðna og hvata sem þetta tortímingarkerfi nærist á! Afnám fimmtu dauðasyndarinnar – ágirndar. Innleiðing hliðstæðrar höfuðdyggðar – örlætis og gjafmildi.

Jólabarnið segir: „Þú þjónar ekki tveimur herrum; Guði og mammon“. Ennfremur: „Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“

Í Markúsarguðspjalli, 10. kapítula, er þessi merkilega frásögn um fyrirlitningu jólabarnsins á auði og eignafíkn:

17. Þegar hann var að leggja af stað, kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: „Góði meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?“

18. Jesús sagði við hann: „Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn.

19. Þú kannt boðorðin: ,Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, þú skalt ekki pretta, heiðra föður þinn og móður.‘“

20. Hinn svaraði honum: „Meistari, alls þessa hef ég gætt frá æsku.“

21. Jesús horfði á hann með ástúð og sagði við hann: „Eins er þér vant. Far þú, sel allt, sem þú átt, og gef fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himni. Kom síðan, og fylg mér.“

22. En hann varð dapur í bragði við þessi orð og fór burt hryggur, enda átti hann miklar eignir.

23. Þá leit Jesús í kring og sagði við lærisveina sína: „Hve torvelt verður þeim, sem auðinn hafa, að ganga inn í Guðs ríki.“

Jólabarnið er ómyrkt í máli. Sel ALLT sem þú átt og gef fátækum, ekki aðeins þriðjung, helming eða þrjá fjórðu. Allt!

Jólabarnið helgar sig snauðum og fátækum, og á Íslandi eru vissulega margir sem lepja dauðann úr skel. 350 þúsund krónur á mánuði eru háð og spé þegar leiga fyrir tveggja herbergja íbúð er 250 þúsund á mánuði, það kostar 45 þúsund að láta draga úr sér brotinn jaxl og kíló af ýsuflökum kostar 4 þúsund krónur.

Jólabarnið mun því leggja blessun sína yfir málflutning verkalýðshreyfingarinnar þegar hún fer fram á réttlæti og sanngirni í samningum við vinnukaupendur á næstu mánuðum!

Jólabarnið mun stappa stálinu í þá sem benda Þorsteini Má og Benedikt, Guðbjörgu og Björgólfi, og öðrum íslenskum auðkýfingum, á að þeim gefist kostur á björgun sálar sinnar, frelsi frá helvítislogum, með því að afsala sér eigum sínum í hendur þeirra sem skortir flest.

Jólabarnið breiðir út faðminn og fagnar nýju systkini sínu, númer 8.000.000.000.

Jólabarnið staðhæfir að allir eigi heiminn, allir eigi gæði heimsins, allir eigi kröfu á lífi, menntun og menningu í heiminum.

Gleðileg jól.

Höfundur er trúnaðarmaður Sameykis á Vífilsstöðum.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)