Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

21. mars 2013

Happdrætti - Þú ferð í „pottinn“ ef þú svarar könnuninni!

stofnun-arsinsSFR hvetur alla félagsmenn til að taka þátt í könnuninni Stofnun ársins en við höfum verið stolt af góðri þátttöku undanfarin ár sem skapað hefur grunn að áreiðanlegum niðurstöðum. Þeir sem svara könnuninni verða sjálfkrafa með í happdrætti þar sem 6 vinningar eru í boði, tvö gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 60 þúsund krónur, tveir aðgöngumiðar að Iceland Airwaves hátíðinni 2013 og 2x helgardvöl í orlofshúsi SFR að eigin vali utan úthlutunartíma.

Af hverju stofnun ársins?

Með þátttöku í „Stofnun ársins“ leggur þú þitt af mörkum í baráttunni fyrir betra starfsumhverfi. Stofnun ársins könnunin segir stjórnendum hvað vel er gert og hvað má betur fara. Könnun sem þessi gefur góða mynd af starfsumhverfi stofnunarinnar og starfsánægju. Starfsmenn geta notað niðurstöðurnar til að meta eigin vinnustað í samanburði við aðrar stofnanir og fyrirtæki. Einnig er hér ekki síður tækifæri fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir stöðu starfsmannamála í stofnuninni og hvar þeir standa í samanburði við aðra.

Eitt af markmiðum könnunarinnar er að bæta starfsumhverfi félagsmanna og efla starfsþróun þeirra og til að könnunin gefi sem gleggsta mynd af stöðu mála er afar mikilvægt að sem flestir svari spurningalistanum.

Sjá niðurstöður í könnunum fyrri ára.

Þeir sem enn eiga eftir að svara könnuninni um Stofnun ársins geta nú drifið sig í það, því svarfresturinn hefur verið framlengdur til 23. mars.  Könnunin var send rafrænt til félagsmanna með gild netföng og hringt til þeirra sem ekki vantaði netföng fyrir (starfsmaður þarf að hafa verið í 50% starfi eða meira og verið í a.m.k. 4 mánuði í starfi). Ef einhver hefur hvorki fengið tölvupóst né símtal má hann gjarnan hafa samband við skrifstofuna  í síma 525-8340 (gudrun@sfr.is) eða beint til Capacent (tomas.bjarnason@capacent.is).

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)