4. apríl 2013
Málefni kvennahópa Landspítala þokast í rétta átt
Málefni kvennahópa innan SFR hjá Landspítala munu rædd á morgun á samstarfnefndarfundi SFR og Landspítala, auk þess sem fulltrúar BSRB munu hitta bæði velferðar- og fjármálaráðherra og ræða m.a. málefna spítalans.
Á fjölmennum fundi SFR félaga hjá Landspítala í lok febrúar kom fram sterk krafa félagsmanna um leiðréttingu launa til handa kvennastétta hjá spítalanum. Fyrir lá leiðrétting á launum hjúkrunarfræðinga og loforð ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu á kynbundnum launamun, þar sem sérstaklega átti að líta til heilbrigðisstétta. SFR hafði þá þegar í höndum loforð fjármálaráðherra fyrir því að leiðréttingin skyldi einnig ganga til kvenna innan SFR og ítrekaði fundurinn kröfur félagsins um leiðréttingu launa. Á samstarfsnefndarfundi SFR og Landspítala kom hins vegar í ljós að loforð ráðherra hafði ekki skilað sér til stjórnar spítalans og könnuðust menn þar á bæ ekki við nein loforð um leiðréttingar.
Mikið hefur verið unnið að málinu undanfarnar vikur og á morgun föstudag mun Árni Stefán Jónsson formaður SFR funda með samstarfsnefnd Landspítalans öðru sinni til að ræða framkvæmd leiðréttingarinnar og jafnframt er boðaður fundur framkvæmdastjórnar BSRB, velferðarráðherra og fjármálaráðherra á morgun þar sem þessi mál munu m.a. verða rædd. Árni Stefán mun einnig sitja þann fund sem 1. varaformaður BSRB.