18. júní 2013
Forystufræðsla BSRB og ASÍ
Skráning er hafin á fjölda haustnámskeiða þar sem áhersla er lögð á undirbúning kjarasamninga og betri þjónustu. Skráið ykkur á netinu í tæka tíð en öll aðstoð er veitt í símum 550-0060 og 535-5600. Kennt er um allt land en safnað verður í hópa utan höfuðborgarsvæðisins.Það eru heildarsamtök stéttarfélaga á vinnumarkaði, ASÍ og BSRB, sem hafa tekið höndum saman um sameiginlega fræðslu fyrir starfsfólk sitt og stjórnir með það fyrir augum að mæta breyttum tímum, nýjum áherslum og viðameiri verkefnum. Aðildarfélög BSRB og ASÍ gegna margþættu hlutverki við að bæta hag og verja hagsmuni félagsmanna og hyggjast með Forystufræðslunni miðla, ræða og þróa áfram þekkingu og aðferðir innan samtakanna og efla um leið fagmennsku og lýðræðisleg vinnubrögð.
Smelltu hér til að fara á skráningarsíðu námskeiða.
Námskeið haustið 2013: |
September: |
Umsjón funda og ólík fundarform |
Samningatækni |
Karphúsið og kjarasamningar |
Hópavinna og liðsheild |
Krefjandi samskipti |
Virk hlustun |
Október: |
Fjármál og fjárreiður |
Að koma fram í fjölmiðlum |
Að tjá sig af öryggi |
Upplýsinga og skjalastjórnun |
Þjónustunámskeið |