Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. september 2013

Félagsráð fundar

Fyrsti fundur nýs Félagsráðs var haldinn síðast liðinn föstudag. Á fundinum fór Árni Stefán Jónsson yfir skýrslu ársins, rakti stöðu mála og fjallaði m.a. um kröfugerð félagsins.  Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri kynnti fjárhagsstöðu félagsins. Þá fjallaði Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands um undirbúning kjaraviðræðnanna, en sambandið hefur samningsumboð fyrir 16 aðildarfélög. Kröfugerðirnar eru unnar með ýmsu móti, en félögin eru öll sammála um það að semja til skamms tíma.

Á fundinum var einnig kosið í uppstillingar- og laganefnd SFR. Uppstillingarnefnd skipa þau Ingibjörg Óskarsdóttir sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Augustin Dufatanye,  Gunnar Garðarsson, Olga Gunnarsdóttir og  Þórey Einarsdóttir. Laganefnd skipta Elín Helga Sankó, Jóhanna Lára Ómarsdóttir, Védís Guðjónsdóttir , Ólafur Hallgrímsson og Viðar Ernir Axelsson, sem jafnframt er formaður nefndarinnar.

fulltruarad-web1

felagsrad1

fulltruarad-web2

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)