Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. desember 2013

Vinnumálastofnun rifin niður

Arni við skrifborð ...þungur a brunÍ fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu í þinginu liggur fyrir að Vinnumálastofnun verði að draga úr rekstrarútgjöldum um 342,5 m.kr. frá árinu 2013. Þetta gerir um 27% niðurskurð á einu ári sem hefur gríðarleg áhrif á starfsemi stofnunarinnar.

Árni Stefán Jónsson formaður SFR segir að með þessum niðurskurði sé ekki verið að hagræða heldur sé hér um að ræða miskunnarlaust niðurrif á þeirri góðu þjónustu sem stofnunin hefur veitt atvinnuleitendum á undanförnum árum.

Ef ríkisstjórnin ætlar að ganga fram af slíkum valdhroka, þá þarf að segja upp 40 starfsmönnum. Einnig eru verkefni á borð við átaksverkefni atvinnuleitenda í mikilli hættu. Þar með eru talin árangursrík samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar við Fjölsmiðjur víða um land, en þar hefur verið unnið einstaklega gott starf með ungu fólki. Þessar áætlanir munu hafa mjög alvarlegar afleiðingar til framtíðar. Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd verður einfaldlega lokað og þjónusta ráðgjafa og vinnumiðlara við atvinnuleitendur verður að mestu skorin niður.

„Við stöndum frammi fyrir því að yfir 40 sérhæfð störf á landsbyggðinni hverfa. Á landsvæðum með viðkvæmt atvinnulíf mundu störfin einfaldlega hverfa með ófyrirséðum afleiðingum fyrir starfsmenn, börn þeirra og fjölskyldur. Þetta eru glæsilegar áherslur eða hitt þá heldur, hjá ríkisstjórn sem hefur talað fyrir uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni,“ segir Árni. „Í þessum aðgerðum og fleirum erum við að sjá áherslur stjórnvalda gagnvart þeim sem minna mega sín. Þarna sjáum við bakvið sparigrímu stjórnvalda inní steinhart andlit. Þetta er sama tilfinningalausa andlitið og við sáum þegar ákveðið var að atvinnulausir myndu ekki fá desemberuppbót nú í ár. Hér er allt á sömu bókina lært – þeir sem minna mega sín eru niðurlægðir og á þeim níðst. Stefna þessarar ríkisstjórnar miðast öll við það að gera þá ríku ríkari og rýra kost þeirra efnaminni. Þetta eru forkastanlegar áherslur og ég man ekki til þess að hafa séð svo harkalegar aðgerðir stjórnvalda lengi,“ segir Árni. „Þetta er sannarlega ekki sú stefna sem fólk taldi sig vera að kjósa í vor miðað við kosningaloforðin, heldur er hér valtað yfir almenning og það velferðarkerfi sem við þekkjum og kjósum að hafa hér á landi.“

 

 

 

 

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)